- Um vöruna
- Eiginleikar
Kveðjum skjáglampa
Þessi fallega hannaði sími skartar fallegum Infinity-O skjá sem er samansettur af dýnamískum AMOLED 2X skjá með Vision Booster og 120Hz endurnýjunartíðni. Öll þessi tækni vinnur saman í harmoníu til að skila þér bjartri og fallegri mynd á skjánum þínum sama hvernig birtan er. Eini glampin sem þú færð með þennan skjá er frá afbrygðissömum vegfarendum.
Kröftugur og endingargóður
Síminn er útbúinn 3900 mAh rafhlöðu sem vinnur samhliða gervigreindartækni Samsung til að aðlaga rafhlöðuna að þinni notkun. Rafhlaðan aðlagast að því hvenær og hvernig þú notar símann svo þú getir notað símann í allt að 24 klukkustundir eða jafnvel meira! Allt þetta er knúið áfram af 4nm örgjörva, hraðasta örgjörva sem sést hefur í Samsung síma til þessa. Hvort sem þú ert að taka upp ferðalag, spila tölvuleik, fletta niður samfélagsmiðla eða vinna þá sér örgjörvin um að skila þér sem bestri upplifun, alltaf.
Falleg og sterkbyggð hönnun
Samsung Galaxy S23 er smíðaður með Gorrilla Glass Victus+ að framan og aftan. Gorrilla Glass Victus+ er eitt sterkasta gler sem völ er á í snjallsíma svo síminn þinn þolir betur högg og rispur. Rammi símans er eins og brynja en hann er smíðaður úr sterkasta áli sem sést hefur í Samsung síma hingað til. IP68 ryk- og rakavörnin gerir þér kleift að nota símann þinn hvenær sem er, hvort sem þú ert standandi úti í rigningunni eða þurfir að glósa eftir æfingu.
Fáðu meira úr Nýttu Notað!
Gömul tæki eiga oftast framhaldslíf. Láttu okkur hafa gamla tækið gegn inneign og við komum gamla tækinu í vottaða og umhverfisvæna endurvinnslu. Þannig höldum við hringrásarhagkerfinu gangandi og hugsum um umhverfið. Allir sem kaupa Samsung Galaxy S23 geta fengið auka 20.000 kr ofan á þá upphæð sem fæst fyrir tækið sem er skilað inn í Nýttu Notað.