Samsung Galaxy S23+

256GB
512GB

Síminn sem er með þér út daginn og mögulega þann næst án þess að þurfa djús. Myndavélatækni sem aldrei hefur sést áður hjá Samsung í samvinnu við hraðasta örgjörva sem sést hefur í Samsung síma. Gríptu þér félaga sem þekkir þig eins og sjálfan sig. Fáðu 20.000 kr aukalega í Nýttu Notað í öllum verslunum Símans ef þú skilar inn gömlum síma og kaupir S23+.


Vörunúmer: 70536

20,592

kr./mán
Á mánuði í 12 mánuðiEngin útborgunHeildargreiðsla: 247,100 kr.ÁHK: 13.79%

Staðgreitt

229,990

kr.
Frí heimsending á öllum vörum í vefverslun Símans

S23+ bíður ekki eftir fullkomna augnablikinu

Samsung Galaxy S23+ gerir þér kleift að fanga augnablikin hvenær sem er, hvar sem er. Stærsta stökk Samsung í myndavélatækni til þessa, hvort sem það eru ljósmyndir eða myndbandsupptaka. Samsung hefur þróað í þennan síma lausn sem kallast Super Night sem tekur til í myndunum þínum til að skila þér skýrustu myndinni hvort sem það er í mykri eða glampandi sól.

Skjáglampi tilheyrir fortíðini

Þessi fallega hannaði sími skartar fallegum Infinity-O skjá sem er samansettur af dýnamískum AMOLED 2X skjá með Vision Booster og 120Hz endurnýjunartíðni. Öll þessi tækni vinnur saman í harmoníu til að skila þér bjartri og fallegri mynd á skjánum þínum sama hvernig birtan er. Eini glampin sem þú færð með þennan skjá er frá afbrýðissömum vegfarendum.

Kröftugur og endingargóður

Síminn er útbúinn 4700 mAh rafhlöðu sem vinnur samhliða gervigreindartækni Samsung til að aðlaga rafhlöðuna að þinni notkun. Rafhlaðan aðlagast að því hvenær og hvernig þú notar símann svo þú getir notað símann í allt að 24 klukkustundir eða jafnvel meira! Allt þetta er knúið áfram af Snapdragon 8 Gen 2 örgjörva, hraðasta örgjörva sem sést hefur í Samsung síma. Hvort sem þú ert að taka upp ferðalag, spila tölvuleik, rúlla niður samfélagsmiðla eða vinna þá sér örgjörvin um að skila þér sem bestri upplifun, alltaf.

Falleg og sterkbyggð hönnun

Samsung Galaxy S23+ er smíðaður með Gorrilla Glass Victus+ að framan og aftan. Gorrilla Glass Victus+ er eitt sterkasta gler sem völ er á í snjallsíma svo síminn þinn þolir betur högg og rispur. Rammi símans er eins og brynja en hann er smíðaður úr sterkasta áli sem sést hefur í Samsung síma hingað til. IP68 ryk- og rakavörnin gerir þér kleift að nota símann þinn hvenær sem er, hvort sem þú ert standandi úti í rigningunni eða þurfir að glósa eftir æfingu.

Fáðu meira úr Nýttu Notað

Gömul tæki eiga oftast framhaldslíf. Láttu okkur hafa gamla tækið gegn inneign og við komum gamla tækinu í vottaða og umhverfisvæna endurvinnslu. Þannig höldum við hringrásarhagkerfinu gangandi og hugsum um umhverfið. Allir sem kaupa Samsung Galaxy S23 geta fengið auka 20.000 kr ofan á þá upphæð sem fæst fyrir tækið sem er skilað inn í Nýttu Notað.

Þú getur fengið gróft verðmat fyrir gamla símann þinn hér.