- Um vöruna
- Eiginleikar
Síminn sem fylgir þér út í hið óendanlega
Ulefone Armor 18T er einn harðgerðasti sími sem völ er á í dag. Síminn er með IP68 og IP69K staðla í ryk- og rakavörn. Ekki nóg með það þá er skjárinn úr Corning Gorilla Glass 5 sem er allt að 4x sterkara en hefðbundið gler.
Þú getur fangað nánast hvað sem er með Ulefone Armor 18T
Síminn sker sig úr hópnum með einstaklega góðri hitamyndavél en myndavélin nemur allt frá -10° upp í 400°. Myndavélin kemur frá FLIR sem er leiðandi í framleiðslu á hitamyndavélum í heiminum. Ekki nóg með það þá er síminn útbúinn 108MP myndavél sem gerir þér kleyft að festa öll augnablik á filmu í frábærum gæðum eða tekið upp myndbönd í 4K upplausn. Síðast en ekki síst þá er síminn útbúinn 5MP Macro linsu sem býr yfir allt að 60x stækkun.
Fallegri upplifun
Það er til lítils að fanga öll augnablikin í frábærum gæðum ef þú getur ekki skoðað þær. Síminn er 6,58" FHD skjá sem birtir allar þínar myndir í frábærri upplausn. Endurnýjunartíðni skjásins er síðan 120Hz sem gerir allar hreyfingar silkimjúkar og fallegar.
Stærri rafhlöðu er erfitt að finna í snjallsíma
Það þýðir ekkert minna en að vera með risa rafhlöðu í síma eins og þessum til að keyra allt áfram. Síminn er útbúinn 9600 mAh rafhlöðu sem þýðir að síminn endist í allt að 524 klukkustundir í biðstöðu og 39 klukkustundir af símtölum. Rafhlöðuna getur þú síðan hlaðið á leifturhraða þegar þú þarft á auka djús að halda en á 30 mínútum fást allt að 52% af hleðslu.