Xiaomi AW300 Útimyndavél

Vertu með puttann á púlsinum öllum stundum, hvort sem þú sért heima eða á ferðalagi. AW300 útimyndavélin sér til þess að ekkert fari framhjá þér og gerir allt sem hún getur til að fæla í burtu óboðna gesti.


Vörunúmer: 71262

9,990

kr./mán
12,990 kr.
Greiða eftir 14 daga

Staðgreitt

9,990

kr.
12,990 kr.
Frí heimsending á öllum vörum í vefverslun Símans

Veðurvarið öryggi

AW300 útimyndavélin nær að vakta stórt svæði þar sem linsan í myndavélinni sér 101,7° sjónarhorn. Myndavélin býður einnig upp á það að senda þér tilkynningar í síma þegar hreyfing verður á sjónsviði hennar. Myndavélin sýnir 2K upplausn bæði í rauntíma og upptökum en myndavélin er einnig með f/2.0 ljósop sem tryggir að öll smáatriði verða skarpari og ljóstruflun helst í lágmarki. Þegar fer að dimma notast myndavélin við ljóskastara þegar hún nemur hreyfingu.

Hentar okkar veðri

AW300 þolir vel íslenskar veðuraðstæður þar sem hún er IP66 varin en myndavélin er einnig útbúin vatnsheldum míkrófón og hátalara svo þú getir átt samtöl í gegnum hana sama hvernig viðrar.

Hvar sem er, hvenær sem er

Myndavélin er aðgengileg þér öllum stundum í gegnum appið sem hún er sett upp í en einnig getur þú tengt hana við önnur Google eða Alexa snjalltæki þar sem þú getur skoðað upptökur eða rauntímastreymi.

Enga óprúttna aðila

Myndavélin býður upp á svokallað Focus Zone sem er svæði sem myndavélin vaktar sérstaklega vel. Myndavélin sendir þér þá tilkynningar þegar hún skynjar hreyfingu á því svæði svo þú gætir fækkað óþarfa tilkynningar. Þegar myndavélin skynjar hreyfingu á því svæði fer sjálfkrafa gang sírena og ljóskastarinn blikkar til að reyna að fæla í burtu óboðna gesti.