- Um vöruna
Sjáðu allt sem þú þarft
C400 innimyndavélin nær að vakta gífurlega stórt svæði þar sem vélin getur snúist í 360° og 106° upp og niður. Myndavélin getur þess að auki elt hreyfingar með notkun gervigreindar sent tilkynningar í símann þinn þegar hún nemur hreyfingar. Myndavélin er útbúin 4MP linsu sem skilar þér 2.5K upplausn að ógleymdri infrarauðri nætusjón sem tryggir að þú sérð allt sem þú þarft að sjá, þegar þú þarft að sjá það. C400 myndavélin hentar því ótrúlega vel í að fylgjast með glæudýrunum eða börnunum þegar þau eru ein heima.
Virkilega snjöll
C400 myndavélin er með uppfærðu gervigreindar reikniriti sem gerir hana betur í stakk búna að greina hreyfingar og mannaferðir til að senda þér tilkynningar. Þú getur svo stillt myndavélina þannig að hún elti þær hreyfingar sem hún nemur.
Taktu spjallið
Xiaomi Home appið gerir þér kleift að eiga samtal í rauntíma í gegnum myndavélina en myndavélin nær að nema hljóð úr allt að 5 metra fjarlægð og sía út óþarfa hljóðmengun fyrir skýrari samtöl.