Xiaomi Snjalldyrabjalla 3

Xiaomi snjalldyrabjallan sér til þess að þú sért alltaf með puttann á púlsinum heima við. Dyrabjallan er útbúin myndavél sem sýnir 107° sjónarhorn í 2K upplausn og gerir þér kleift að eiga samtal við gesti í gegnum hana.


Vörunúmer: 71260

6,419

kr./mán
Á mánuði í 3 mánuðiEngin útborgunHeildargreiðsla: 19,258 kr.ÁHK: 43.75%

Staðgreitt

17,990

kr.
19,990 kr.
Frí heimsending á öllum vörum í vefverslun Símans

Dyrabjallan

Dyrabjallan er útbúin myndavél sem sýnir þér hver er að dingla bjölluni hverju sinni. Dyrabjallan kveikir einnig á sér þegar hún nemur hreyfingu og vistar myndbönd af því sem er að gerast í þrjá daga í skýjageysmlu. Þess að auki er hún útbúin fjórum infrarauðum skynjurum sem gera henni kleift að sjá betur í slakari birtuskilyrðum. Þegar dyrabjallan er að verða orkulaus er hún einfaldlega sett í hleðslu en hana þarf einungis að hlaða þrisvar á ári.

Þú getur alltaf verið við

Þegar myndavélin skynjar hreyfingu sendir hún tilkynningu í símann þinn og þú getur séð strax hvað er um að vera. Þú getur einnig átt samtal í gegnum myndavélina úr appinu sem þýðir að það sem þú segir í símann þinn segir myndavélin við þann sem er fyrir utan. Þess að auki er hægt að stilla sjálvirkt svar þegar ýtt er á dyrabjölluna.