Galaxy Watch9 - Fylgir þér allan sólarhringinn og veitir persónulega innsýn í heilsu, svefn og vellíðan.
Samsung Galaxy Watch9 er snjallúr sem hjálpar þér að skilja líkama þinn betur allan sólarhringinn. Með lengri rafhlöðuendingu, öflugri afköstum og Galaxy AI færðu persónulega leiðsögn um svefn, hjartaheilsu, hreyfingu og daglega vellíðan. Hnökralaus hönnun gerir úrið einstaklega þægilegt í notkun, hvort sem þú ert að æfa, vinna eða sofa.
Forsala: Áætluð afhending 9. ágúst 2026, eintök eru afgreidd eftir röð pantana. Forsölutilboð er til 9. ágúst 2026.
Kaupauki: Þegar þú kaupir Samsung Galaxy Watch 9 á forsölutímabili þá færðu auka ól á úrið með sem kaupauka. Ólin sem fylgir með er Galaxy Watch9 Fabric ól, svört. Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Galaxy Watch Ultra2 – Ótrúlegt snjallúr hannað fyrir ævintýrin og daglega notkun.
Samsung Galaxy Watch Ultra2 er öflugasta snjallúr Samsung til þessa. Hannað fyrir þá sem vilja hámarks endingu án þess að gefa eftir í snjöllum eiginleikum. Með 800 mAh rafhlöðu, nýjum og sparneytnari Snapdragon örgjörva og einstaklega björtum skjá sem nær allt að 5.000 nits er úrið tilbúið fyrir krefjandi útivist, æfingar og daglegt líf. Hvort sem þú ert á fjallstindi, í hlaupaleið eða undir yfirborði sjávar er Galaxy Watch Ultra2 tilbúið í verkefnið.
Forsala: Áætluð afhending 9. ágúst 2026, eintök eru afgreidd eftir röð pantana. Forsölutilboð er til 9. ágúst 2026.
Kaupauki: Þegar þú kaupir Samsung Galaxy Watch Ultra 2 á forsölutímabili þá færðu auka ól á úrið með sem kaupauka. Ólin sem fylgir með er Galaxy Watch Ultra2 PeakForm ól, svört. Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Apple Watch 11 LTE – Ný kynslóð af snjallri heilsu, hraða og tengingu – alltaf með þér.
Apple Watch 11 LTE er nýjasta kynslóð af snjallúrum frá Apple, hannað til að hjálpa þér að halda utan um heilsu, hreyfingu og daglegt líf með meiri nákvæmni og þægindum. Með LTE tengingu geturðu hringt, sent skilaboð og streymt tónlist án þess að hafa símann með þér. Úrið býður upp á öflugar heilsumælingar, snjallar tilkynningar og glæsilega hönnun sem passar jafnt í vinnu sem í frítíma. Fullkomið fyrir þá sem vilja frelsi, stíl og tækni á úlnliðnum.
Stílhreinn snjallhringur sem fylgist með heilsunni allan daginn. Með háþróuðum heilsumælingum, svefngreiningu og tengingu við Galaxy vistkerfið færðu kraft snjalltækja beint á fingurinn. Rafhlaðan í Galaxy Ring endist í allt að 7 daga. Þegar komið er að því að hlaða setur þú hringinn aftur í boxið. LED ljós á boxinu sýna þér svo stöðuna á hleðslunni. Vertu á undan öðrum og gerðu lífið einfaldara með Galaxy Ring!
Apple Watch SE 3 LTE – Meira frelsi, meiri hreyfing.
Apple Watch SE 3 LTE er frábært snjallúr fyrir þá sem vilja öfluga Apple Watch upplifun á hagkvæmu verði, með auknu frelsi frá LTE tengingu. Með LTE geturðu hringt, sent skilaboð og fengið tilkynningar án þess að hafa símann alltaf með þér, sem gerir úrið fullkomið fyrir æfingar, ferðalög og daglegt líf. Það fylgist með hreyfingu, svefni og heilsu, býður upp á snjalla öryggiseiginleika og skilar hraðri og skilvirkri frammistöðu. Apple Watch SE 3 LTE er snjallt val fyrir þá sem vilja vera tengd, virk og í takt við daginn.
Galaxy Watch 8 – Snjallari heilsa, betri frammistaða og stíll sem passar við allt.
Glæsileg hönnun og þægindi eru leiðarstef í snjallúrinu Galaxy Watch 8. Næfurþunnt og liggur vel á hendi, þú gleymir að það sé til staðar og alltaf til taks. Galaxy Watch keyrir á Google Wear OS, sérhönnuðu stýrikerfi fyrir snjallúr þróað í sameiningu af Google og Samsung sem styður sérstaklega við Google Gemini, leiðandi gervigreindarþjónustu Google.
Galaxy Watch 8 Classic – Klassísk hönnun með snjallri tækni og fullkominni stjórn.
Óþjálfað augað greinir ekki hversu snjallt Galaxy Watch 8 Classic raunverulega er. Tímalaus hönnun úr ryðfríu stáli og safír kristal blandar saman gamla tímanum við þann nýja. Bakvið tjöldin leynist Google Wear OS, sérhannað stýrikerfi fyrir snjallúr þróað í sameiningu af Google og Samsung sem styður sérstaklega við Google Gemini, leiðandi gervigreindarþjónustu Google.
Galaxy Watch Ultra er fyrir þau allra kröfuhörðustu, það þolir flest og fer með þér upp á fjöll í utanvegahlaupin, í gönguna á Hornstrandir eða kajak ferðina meðfram suðurströndinni. Títan umgjörðin, safír glerið og 10ATM vatnsvörnin sér til þess að Watch Ultra er alltaf til taks og til í slaginn. Með 47mm skjá , Exynos W1000 örgjörva og 564mAh rafhlöðu eru þér allir vegir færir.
Apple Watch Ultra 3 LTE Alpine Loop – Harðgerður kraftur fyrir fjöllin, ævintýrin og áskoranirnar.
Apple Watch Ultra 3 LTE með Alpine Loop ólinni er hannað fyrir þá sem lifa á fullum krafti og krefjast þess besta. Þetta er harðgerður og öflugur félagi fyrir útivist, ævintýri og krefjandi aðstæður, með nákvæmri GPS staðsetningu, langri rafhlöðuendingu og LTE tengingu sem tryggir að þú sért alltaf tengdur. Alpine Loop ólin er hönnuð fyrir styrk og þægindi, sem gerir úrið fullkomið fyrir fjöll, ferðalög og mikla hreyfingu.