Garmin Venu X1 – Flott hönnun, öflug tækni og frammistaða á næsta stigi.
Garmin Venu X1 býður upp á háþróaða heilsu- og æfingatækni í flottri umgjörð. Með nákvæmum mælingum, fjölbreyttum æfingaprógrömmum og skýrum skjá færðu djúpa innsýn í frammistöðu og bata. Úrið hentar jafnt fyrir metnaðarfulla íþróttaiðkendur og þá sem vilja hámarks yfirsýn yfir eigin heilsu og virkni. Stóri 2” AMOLED skjárinn með safírgleri og titanium umgjörð tryggir að þú færð eitthvað sem lítur vel út og þolir daglegt hnjask.
Apple Watch SE (Gen 2) LTE – Einfalt og hagkvæmt snjallúr.
Apple Watch SE (Gen 2) LTE er frábært snjallúr fyrir þá sem vilja Apple upplifunina á einfaldan og hagkvæman hátt, með auknu frelsi með LTE tengingu. Þú getur hringt, sent skilaboð og fengið tilkynningar án þess að hafa símann með þér á meðan úrið fylgist með hreyfingu, svefni og daglegri virkni. Úrið er létt, þægilegt og hannað fyrir daglegt líf, snjallt val fyrir alla sem vilja vera tengdir og á hreyfingu.
Garmin Lily 2 Active – Létt, stílhreint og hannað fyrir virkan lífsstíl.
Garmin Lily 2 Active er létt og stílhreint snjallúr sem sameinar flotta hönnun og öfluga heilsumælingu. Það fylgist með hjartslætti, svefni og daglegri hreyfingu á einfaldan og aðgengilegan hátt, án þess að fórna útliti. Fullkomið fyrir þá sem vilja fallegt og nett úr sem styður virkan lífsstíl. Innbyggt GPS fyrir æfingar eins og göngu, hlaup og fleira. Úrið nær allt að 9 daga rafhlöðuendingu, hefur púlsmæli, heilskráningu, svefnskráningu og fleira.
Garmin Vivoactive 6 – Bjartara, snjallt og litríkt snjallúr.
Garmin Vivoactive 6 er fjölhæft æfingaúr sem hjálpar þér að ná markmiðum þínum með nákvæmum mælingum og fjölbreyttum æfingastillingum. Það fylgist með hjartslætti, orkustigi og svefni og veitir skýra yfirsýn yfir framfarir þínar. Með langri rafhlöðuendingu og snjöllum tengingum er þetta áreiðanlegur félagi í bæði æfingum og daglegu lífi.
Apple Watch 9 LTE stál – Premium stálhönnun og öflug tækni
Apple Watch Series 9 er fullkomið fyrir þá sem vilja premium útlit og afkastamikla tækni í einu og sama úri. Stálhönnunin gefur úrinu glæsilegt og vandað yfirbragð, á meðan LTE tenging tryggir að þú sért alltaf tengdur án þess að þurfa símann með þér. Með öflugum heilsu- og æfingaeiginleikum, skýrum skjá og hröðum örgjörva er þetta úr sem hentar bæði í vinnu, frítíma og æfingar.
Galaxy Watch 6 Classic – Tímalaus klassík með öflugri snjallúrstækni.
Galaxy Watch6 Classic úrið gerir svo margt sem síminn þinn gerir nema á þægilegri máta, allt beint af úlnliðnum þínum. Hlustaðu á tónlist, borgaðu fyrir innkaupin eða farðu á æfingu með einu snilldar úri á hendinni þinni. Úrið fylgir þér út allan daginn á auðveldan máta þökk sé endingargóðri rafhlöðu sem sparar orku við öll tækifæri.
Polar Charge 2.0 er segul hleðslukapall sem festist á Loop úrið. Notaður Polar Charge 2.0 til að tengjast tölvu og á fljótlegan hátt samstilla æfinga gögnin þín yfir í Polar Flow vef forritið.