Apple AirTag

Apple
Apple AirTag veit hvar hlutirnir þínir eru og leiðir þig að þeim!

6.990 kr

Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista
Til á lager
Vefverslun
Ármúli
Smáralind
Akureyri

Það er búið að tala um AirTag í nokkur ár, og alltaf hélt fólk að nú væri komið að því að kynna þau til leiks en aldrei komu þau. En núna eru þau að koma loksins.

Hægt er að festa AirTag á t.d. töskuna þína, veskið, bakpokann, tölvutöskuna, hjólið og í raun hvað sem er og þú getur fundið það aftur. Hægt verður að kaupa sérstaka festingu fyrir AirTag þannig að þau líta í raun bara út eins og lyklakippa. Ekki nóg með það þá er Apple AirTag IP67 vatnsvarið.

Þegar þú svo notar símann þinn til að finna týnda hlutinn notar iPhone myndavélina, hraðanema, hallarnema og fleira til að vísa þér þráðbeint á réttan stað. Svo geturðu líka bara beðið Siri um að finna þetta fyrir þig.

Síminn - Vefverslun Símans - Apple AirTag