10" Stafrænn Myndarammi Viðar rammi PFF-1044

Denver
Haltu dýrmætum minningum lifandi og deildu fallegum augnablikum með fjölskyldu og vinum, hvar sem þau eru stödd

Glæsilegur stafrænn myndarammi sem heldur dýrmætum minningum lifandi og færir fjölskyldu og vini nær hvort öðru. Með skýrum 10,1 tommu IPS snertiskjá og fallegri litabirtingu njóta uppáhaldsmyndirnar þínar sín til fulls. Innbyggt Wi-Fi og FRAMEO smáforritið gera þér og þínum nánustu kleift að senda myndir og myndskeið beint úr símanum í rammann, hvar sem þið eruð stödd.
Frábær leið til að deila skemmtilegum augnablikum.

Myndaramminn er einfaldur í notkun og býður upp á 16 GB innbyggt geymslurými ásamt möguleika á að bæta við MicroSD minniskorti allt að 64 GB. Snertiskjárinn auðveldar alla stjórnun og snjallir eiginleikar á borð við sjálfvirkan myndsnúning og svefnstillingu tryggja þægilega notkun. Ljós eða dökk viðaráferð gefur rammanum hlýlegt og stílhreint yfirbragð sem passar fallega inn á hvert heimili.

Tilvalin gjöf fyrir fjölskyldu og vini sem vilja njóta góðra minninga á hverjum degi.

17.990 kr

eða 6.394 kr./mán í 3 mánuði og engin útborgun*
Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista

Frameo

Denver stafræni myndaramminn er útbúin snjallforriti sem kallast Frameo sem gerir þér kleyft að deila minningum með vinum og vandamönnum á fljótlegan máta. Þú getur boðið hverjum sem er aðgang að myndarammanum þínum og getur hann sent myndir hvenær sem er með þínu samþykki. Þú stjórnar hversu margar myndir eru birtar og hversu oft þær breytast.

Tengingar

Ramminn tengist við Wifi tenginguna heima hjá þér til auðvelda þér að skipta um myndir. Ramminn er þó ekki bundinn net tengingu heldur getur þú hlaðið myndum beint inn á rammann. Raminn er með 16GB geymslupláss og rauf fyrir SD kort. Möguleikarnir fyrir notkun eru því nokkrir.

10" Stafrænn Myndarammi Viðar rammi PFF-1044 – Vefverslun Símans