Apple AirTag 2gen

Apple
Apple AirTag 2gen - öryggi og einfaldleiki í einu litlu tæki.

Apple AirTag (2. gen) hjálpar þér að halda utan um lykla, veski, töskur og aðra mikilvæga hluti á einfaldan og öruggan hátt. Með nákvæmri staðsetningu í gegnum Find My appið geturðu fljótt fundið það sem þú ert að leita að, hvort sem það er heima eða á ferðalagi.
AirTag er nettur, endingargóður og fullkominn fyrir þá sem vilja meiri yfirsýn og öryggi í daglegu lífi.

5.990 kr

Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista

Ef AirTag er týnt en samt innan nokkurra metra radíuss, þá getur iPhone 11 eða nýrri leitt þig áfram með ótrúlegri nákvæmni, þökk sé Ultra Wideband-tækni.
Bætt nákvæmnisleit virkar með AirTag 2 á iPhone Air eða iPhone 15 eða nýrri (að undanskildum iPhone 16e); virkni er mismunandi eftir markaðssvæðum.
Nákvæmnisleit á Apple Watch virkar með AirTag 2 á Apple Watch Series 9 eða nýrra, eða Apple Watch Ultra 2 eða nýrra, með watchOS 26.2.1 eða nýrra.

Hægt er að festa AirTag á t.d. töskuna þína, veskið, bakpokann, tölvutöskuna, hjólið og í raun hvað sem er og þú getur fundið það aftur. Ekki nóg með það þá er Apple AirTag IP67 vatnsvarið.

Rafhlaðan í AirTag endist í u.þ.b. 1 ár og þá er auðvelt að skipta um hana (CR3032). iPhone síminn þinn lætur vita áður en þess þarf.
Lágmarks kröfur: Apple Account iPhone eða iPod touch með iOS 14.5 eða nýrra iPad með iPadOS 14.5 eða nýrra.

Apple AirTag 2gen – Vefverslun Símans