Denver

Denver

Denver myndaprentari 6010

Prentaðu uppáhalds augnablikin þín hratt, auðveldlega og þráðlaust.

Fyrirferðarlítill og þægilegur prentari sem gerir þér kleift að prenta myndir, límmiða, segla og fleira á einfaldan hátt hvar sem er. Bluetooth 5.2 tenging tryggir hraða og stöðuga tengingu við snjallsímann þinn á meðan Labelnize appið fyrir iOS og Android gerir ferlið einstaklega einfalt og notendavænt.
Prentarinn skilar skörpum og góðum prentgæðum með 600 dpi upplausn og styður fjölbreyttar pappírsgerðir, þar á meðal ljósmyndapappír, límmiðapappír, segulpappír, fatapappír og tattoo pappír. Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða gerir þér kleift að prenta allt að 40 myndir á einni hleðslu, sem gerir prentarann fullkominn til að taka með sér hvert sem er.

Fylgir með í kassanum:
Denver 6010 prentari
USB-A í USB-C hleðslusnúra
1x prenthylki, 20stk pappír (4x venjulegur pappír, 4x límmiðapappír, 4x fatapappír, 4x segulpappír og 4x tattoo pappír)

Tengja þarf prentarann við Labelnize appið.
19.990 kr

    Denver

    Denver myndaprentari 6010 - aukahlutir

    1.490 kr frá 1.192 kr

      Denver

      Denver skjávarpi 4K PR-4300

      Skjáupplifun með skýrri 4K mynd og einfaldri tengingu við uppáhaldsefnið þitt.

      Njóttu þess að horfa á afþreyingu á allt að 180 tommu skjá með öflugum skjávarpa sem skilar skýru myndefni með stuðningi við 4K upplausn.
      Gott birtustig tryggir skarpa mynd með djúpum litum. Skjávarpinn býður upp á sveigjanlega uppsetningu, innbyggt Bluetooth fyrir tengingu við hátalara og fjölbreytta tengimöguleika fyrir einfalt aðgengi að efni úr snjalltækjum, tölvum og öðrum afspilunarbúnaði.
      Skjávarpinn er tilbúinn til notkunar með beinni tengingu við rafmagn og fylgihlutum sem fylgja með í pakkanum.
      24.990 kr

        Denver

        10" Stafrænn myndarammi PFF-1024

        Deildu dýrmætum minningum með fjölskyldu og vinum á einfaldan hátt og njóttu uppáhaldsmyndanna þinna á fallegum stafrænum myndaramma.

        Haltu dýrmætum minningum lifandi og deildu fallegum augnablikum með fjölskyldu og vinum á einfaldan og skemmtilegan hátt. Glæsilegur 10,1 tommu stafrænn myndarammi með skýrum IPS snertiskjá sýnir uppáhaldsmyndirnar þínar í fallegum litum. Með Wi-Fi tengingu og ókeypis Frameo appinu geta fjölskylda og vinir sent myndir og myndbönd beint í rammann, hvar sem þau eru stödd. Innbyggt 16 GB geymslurými veitir gott pláss fyrir minningarnar og innbyggður hátalari gerir þér kleift að njóta myndbanda með hljóði.
        Einföld og þægileg notkun gerir myndarammann að frábærri viðbót við heimilið eða fallegri gjöf fyrir ástvini. Með fjölbreyttum eiginleikum eins og dagatali, klukku, veðurupplýsingum og myndaalbúmum geturðu sérsniðið upplifunina að þínum þörfum.
        Fullkomin leið til að varðveita góðar minningar og njóta þeirra á hverjum degi.
        14.990 kr frá 11.992 kr
        Denver – Vefverslun Símans