Heat it™ Classic skordýrabitabaninn
Ekki klóra bitið, notaðu tæknina!
Láttu pirrandi kláða ekki eyðileggja sumarið! Með Heat it classic getur þú bjargað útilegunni, fjallgöngunni eða sólarlandaferðinni frá óþægindum eftir flugnabit frá lúsmýi, moskítóflugum og öðrum skordýrum.
Þú einfaldlega smellir Heat it í USB-C tengið á símanum þínum, opnar appið og hitar flugnabitið. Tækið hitar flugnabitið með 51° gráðu hita í nokkrar sekúndur sem er vísindalega sannað að virkar til að minnka óþægindi.
Í appinu er hægt að stilla meðferðartíma þannig að hann sé fjórar, sjö eða níu sekúndur og hitann má stilla frá 45,5° upp í 51° allt eftir því hverju hver og einn óskar eftir. Appið virkar með Android og iPhone símum sem hafa USB-C hleðslutengi. Tækið er eingöngu hannað til að tengjast við snjallsíma, ekki við hleðslutæki eða önnur tæki.
Mælt er með að nota tækið um leið og þú tekur eftir flugnabiti, þannig má draga úr eða koma í veg fyrir einkenni.