iPhone 17 (allir) glært MagSafe hulstur
Þunnt, létt og gott að halda á – þetta hulstur frá Apple dregur fram fágaðan lit iPhone 17 um leið og það veitir góða vörn.
Hulstrið er gert úr gegnsæju pólýkarbónati og sveigjanlegum efnum svo það passar fullkomlega og gerir takkana auðvelda í notkun. Þetta hulstur virkar óaðfinnanlega með myndavélarstýringunni til að skynja nákvæmar fingrahreyfingar, eins og smelli og strokur.
Yfirborðið er með rispuvörn, bæði að innan og utan. Öll efni og húðun eru fínstillt til að koma í veg fyrir að hulstrið gulni með tímanum.
Með innbyggðum seglum sem staðsetja sig fullkomlega á iPhone 17 er tengingin leikur einn og þráðlausa hleðslan hröð. Í hvert einasta skipti. Þegar komið er að því að hlaða er nóg að smella MagSafe-hleðslutækinu á hulstrið eða leggja iPhone-símann á Qi2.2- eða annað Qi-vottað hleðslutæki.
Eins og öll hulstur sem Apple hannar hefur það farið í gegnum þúsundir klukkustunda af prófunum á hönnunar- og framleiðslustigi. Það lítur því ekki aðeins vel út – það verndar líka iPhone-símann fyrir rispum og höggum.