iPhone 17 Pro / Pro Max Sílikon MagSafe hulstur

Apple
Silikonhulstrið með MagSafe er hannað af Apple sérstaklega fyrir iPhone 17 Pro / Pro Max. Það er fullkomin leið til að vernda iPhone-símann þinn. Og það festist örugglega við axlarólina svo þú getir haft iPhone-símann þinn við höndina án þess að ganga um með hann í hendinni.

Hulstrið er gert úr 45% endurunnu silikonefni og er með silkimjúkri áferð að utan sem gott er að halda á. Að innan er það fóðrað með mjúkum örtrefjum fyrir enn betri vörn.

Þetta hulstur virkar óaðfinnanlega með myndavélarstýringunni til að skynja nákvæmar fingrahreyfingar, eins og smelli og strokur.

Með innbyggðum seglum sem passa fullkomlega við iPhone 17 Pro / Pro Max býður þetta hulstur upp á einfaldari og hraðari þráðlausa hleðslu. Í hvert einasta skipti. Þegar komið er að hleðslu þarftu bara að láta hulstrið vera á símanum og smella MagSafe-hleðslutækinu á eða leggja hann á Qi2- eða Qi-hleðslutæki.

Eins og öll hulstur sem Apple hannar hefur þetta farið í gegnum þúsundir klukkustunda af prófunum á hönnunar- og framleiðslustigi. Þannig að auk þess að líta vel út verndar það iPhone-símann fyrir rispum og höggum.

9.990 kr

Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista
Síminn - Vefverslun Símans - iPhone 17 Pro / Pro Max Sílikon MagSafe hulstur