iPhone 17 Pro / Pro Max TechWoven MagSafe hulstur

Apple
Þetta ofna hulstur með MagSafe frá Apple gefur iPhone 17 Pro / Pro Max persónulegan stíl og góða vörn.

Hulstrið er úr sérhönnuðu ofnu efni og er úr 100% endurunnu pólýester. Marglitu garni er ofið saman á Jacquard-vefstól í áþreifanlega áferð með djúpum og ríkulegum lit. Hliðar hulstursins eru með lagi af létt áferðarmiklu TPU fyrir betra grip. Fágaðir takkar úr anodíseruðu áli gefa nákvæma áþreifanlega svörun.

Hulstrið er með tveimur festipunktum svo hægt er að festa CrossBody-ólina tryggilega og nota iPhone án þess að halda á honum.

Með innbyggðum seglum sem staðsetja sig fullkomlega á iPhone 17 Pro / Pro Max býður þetta hulstur upp á auðveldari og hraðari þráðlausa hleðslu. Í hvert einasta skipti. Þegar komið er að hleðslu læturðu hulstrið einfaldlega vera á iPhone og smellir MagSafe-hleðslutækinu á eða setur það á Qi2- eða Qi-hleðslutæki.

Eins og öll önnur hulstur hönnuð af Apple hefur það farið í gegnum þúsundir klukkustunda af prófunum á hönnunar- og framleiðslustigi. Þannig að auk þess að vera flott á að líta verndar það iPhone fyrir rispum og höggum.

9.990 kr

Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista
Síminn - Vefverslun Símans - iPhone 17 Pro / Pro Max TechWoven MagSafe hulstur