MacBook Neo

Einstök litadýrð með MacBook Neo. Fjórir glæsilegir litir. Ein endingargóð hönnun.

Væntanleg.
MacBook Neo er létt og sterk tölva sem fylgir þér í skóla, vinnu og allt þar á milli. Þú færð allt að 16 klst. rafhlöðuendingu, bjartan 13" Liquid Retina skjá og öfluga A18 Pro-flögu sem heldur öllu gangandi – hvort sem þú ert að læra, vinna skapa eða slaka á.

256GB er með Magic lyklaborði
512GB er með Magic lyklaborði með Touch ID

119.990 kr

eða 11.352 kr./mán í 12 mánuði og engin útborgun*
Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista

Skýr og bjartur skjár

13" Liquid Retina skjár. Ótrúlega skýr og bjartur. Einn milljarður lita. 3,6 milljónir pixla gefa ótrúlega upplausn. Opnaðu og segðu: vá.

A18 Pro-flaga – afköst sem þú finnur fyrir

Með A18 Pro-flögunni keyra forritin hratt og mjúklega. Þú getur unnið í mörgum hlutum í einu, klippt efni, unnið skapandi verkefni og spilað leiki án þess að tölvan verði þung í notkun.

Veldu lit sem passar þér

Litríkasta MacBook línan hingað til. Veldu úr fjórum glæsilegum litum með lyklaborð í stíl. Silfur, ljósbleikur, gulur og dökkblár.

Rafhlaða sem endist yfir daginn

Allt að 16 klukkustunda rafhlöðuending. MacBook Neo er tilbúin að fylgja þér hvert sem er og dugir allan daginn fyrir þín helstu verkefni.

macOS

macOS er öflugt og notendavænt stýrikerfi sem er innbyggt í MacBook Neo. Auðvelt í notkun. Keyrir öll uppáhaldsforritin þín hnökralaust. Gerir alla virkni enn skemmtilegri. Parast á töfrandi hátt við iPhone og opnar fyrir enn fleiri eiginleika. Kemur í Liquid Glass-hönnun sem gerir upplifunina enn betri.

Aukið öryggi

MacBook Neo kemur með háþróuðum öryggislausnum líkt og sjálfvirkri dulkóðun gagna, innbyggðri persónuvernd, ókeypis vírusvörn og reglulegum hugbúnaðaruppfærslum. Svo þú getur verið róleg/ur vitandi að gögnin þín eru örugg á netinu. Svo þú getur notað tölvuna af meiri ró, bæði heima og á ferðinni.

Nýttu þér Apple Intelligence – aðstoð þegar þú vilt

Með Apple Intelligence er innbyggð gervigreind í tölvunni sem hjálpar þér að skrifa, móta texta og klára verkefni hraðar. Apple Intelligence er hannað til að vernda persónuvernd þína í hverju skrefi. Úrvinnsla fer fram á tækinu sjálfu, þannig að kerfið skilur upplýsingar þínar án þess að safna þeim.Gervigreindarforrit og verkfæri sem þú notar mest, eins og ChatGPT og Canva, virka frábærlega á MacBook Neo.

MacBook Neo – Vefverslun Símans