Aqara P2 fjölnotaskynjari - Fylgstu með hurðum og gluggum og fáðu snjallar tilkynningar sem auka öryggi og gera heimilið sjálfvirkara.
Aqara P2 Matter er nettur fjölnotaskynjari sem eykur öryggi og yfirsýn á heimilinu með því að nema og láta vita þegar að hurðir eða gluggar eru opnaðir.
Hann sendir tilkynningar beint í snjallkerfið þitt og gerir þér kleift að búa til snjalla sjálfvirkni sem einfaldar daglegt líf og eykur hugarró.
Aqara P2 byggir á Matter og Thread samskiptastöðlunum sem tryggir áreiðanlega og trygga tengingu við helstu snjallvistkerfi á borð við Apple HomeKit, Alexa og Google Home.
Uppsetning er einföld og með tengingu við Aqara M3 brú færðu öfluga og samhæfða lausn fyrir snjallheimilið.