PanzerGlass 2-Way Privacy verndar bæði skjáinn og upplýsingarnar þínar.
Sérstök skjásía sem gerir innihald skjásins nánast ósýnilegt þeim sem sitja við hliðina á þér, hvort sem það er í strætó, á kaffihúsi eða á skrifstofunni, en á sama tíma er skjárinn kristaltær fyrir þann sem horfir beint á hann. Skjávörnin er framleidd úr 60% endurunnu gleri, með fingrafara- og fitufráhrindandi húð og veitir jafnframt framúrskarandi vörn gegn rispum og höggum. Ultra-Wide Fit hönnun tryggir fulla þekju skjásins án þess að hindra notkun hulsturs fyrir hámarks vernd og hugarró í daglegu lífi.
CARE hulstur með standi - öflug vörn með flottum og þægilegum standi.
Hulstrið er framleitt úr endurunnu plasti, virkar með magsafe og kemur með 1 árs ábyrgð gegn gulnun. Nett og létt hönnun sameinar framúrskarandi vörn og snjalla virkni, meðal annars fjölhæfan stand sem gerir þér kleift að horfa á efni handfrjálst, bæði lóðrétt og lárétt. Fullkomið fyrir samfélagsmiðla, streymi, kvikmyndir eða æfingar, hvar og hvenær sem er. Auk þess veitir hulstrið aukna myndavélarvörn svo myndirnar þínar séu jafn öruggar og síminn sjálfur.
CARE SL1M fyrir Samsung – nett og tilbúið í hraðann, með vörn sem heldur í við þig.
SL1M frá CARE er þynnsta hulstrið þeirra til þessa, aðeins 1 mm á þykkt en með öflugri vörn. Hulstrið virkar með magsafe og er framleitt úr 100% endurunnu plasti. Sérstök Nanotech yfirborðsmeðferð hrindir frá sér svita og farða og 1 árs ábyrgð gegn gulnun tryggir langvarandi, fallegt útlit. Létt og nett hulstur með hámarks vernd og hönnun sem lætur símann njóta sín.
CARE Urban Explorer fyrir Samsung – hannað fyrir ævintýri dagsins með hámarks vernd og stíl.
CARE Urban Explorer hulstrin sameina sterka og áreiðanlega vörn með nútímalegri, hrárrri hönnun sem hentar bæði í borgarlífi og á ferðinni. Hulstrin eru gerð úr endingargóðum efnum sem vernda símann gegn höggum og rispum. Stílhrein áferð og vönduð smáatriði gera Urban Explorer að fullkomnu vali fyrir þá sem vilja bæði öryggi og karakter í hverju skrefi.
Empower turbo 70W hleðslukubbur - Öflug og hraðvirk hleðsla fyrir öll tækin þín í einni snjallri og endingargóðri lausn.
Empower by Panzerglass er nýjasta vörulínan frá Panzerglass. Hraðvirkur og áreiðanlegur hleðslukubbur sem hentar snjallsímum, spjaldtölvum, fartölvum og fleiri tækjum. Hann styður allt að 70W hraðhleðslu, er búinn tveimur USB-C tengjum og einu USB-A tengi og nýtir GaN tækni fyrir betri afköst, minni hitamyndun og meiri orkunýtni. Innbyggð vörn gegn ofhitnun tryggir örugga hleðslu á meðan PD3.1 stuðningur veitir víðtæka samhæfni við mismunandi tæki og endingargóð hönnun úr 90% endurunnu plasti gerir hann bæði öflugan og umhverfisvænan.