Samsung Galaxy hulstur – hámarks vernd og stílhrein hönnun.
Samsung hulstur eru hönnað til að falla fullkomlega að tækinu og veita áreiðanlega vörn gegn daglegu sliti, rispum og höggum. Hulstrin falla nákvæmlega að tækinu sem tryggir greiðan aðgang að öllum hnöppum og tengjum á meðan stílhrein og vönduð hönnun undirstrikar nútímalegt útlit símans. Létt og þægilegt í hendi, en samt sterkt og endingargott – fullkomið val fyrir þá sem vilja vernda Samsung Galaxy símann án þess að fórna stíl.
CARE Tango 2-in-1 veski - sniðug og skemmtileg hulstur.
CARE by Panzerglass veski og hulstur sem styður MagSafe fyrir Galaxy S26 línuna. Passaðu upp á nýja símann þinn í þessu frábæra og fjölhæfa hulstri. Tango hulstrin frá Panzerglass eru prófuð með 3.6 metra háu fallprófi og hafa sérstaka brún til að vernda myndavélina. Veskið er gert úr sérstöku vegan leðri, engin dýr koma við sögu í framleiðslu þess.
CARE hulstur með standi - öflug vörn með flottum og þægilegum standi.
Hulstrið er framleitt úr endurunnu plasti, virkar með magsafe og kemur með 1 árs ábyrgð gegn gulnun. Nett og létt hönnun sameinar framúrskarandi vörn og snjalla virkni, meðal annars fjölhæfan stand sem gerir þér kleift að horfa á efni handfrjálst, bæði lóðrétt og lárétt. Fullkomið fyrir samfélagsmiðla, streymi, kvikmyndir eða æfingar, hvar og hvenær sem er. Auk þess veitir hulstrið aukna myndavélarvörn svo myndirnar þínar séu jafn öruggar og síminn sjálfur.
CARE SL1M fyrir Samsung – nett og tilbúið í hraðann, með vörn sem heldur í við þig.
SL1M frá CARE er þynnsta hulstrið þeirra til þessa, aðeins 1 mm á þykkt en með öflugri vörn. Hulstrið virkar með magsafe og er framleitt úr 100% endurunnu plasti. Sérstök Nanotech yfirborðsmeðferð hrindir frá sér svita og farða og 1 árs ábyrgð gegn gulnun tryggir langvarandi, fallegt útlit. Létt og nett hulstur með hámarks vernd og hönnun sem lætur símann njóta sín.
CARE Urban Explorer fyrir Samsung – hannað fyrir ævintýri dagsins með hámarks vernd og stíl.
CARE Urban Explorer hulstrin sameina sterka og áreiðanlega vörn með nútímalegri, hrárrri hönnun sem hentar bæði í borgarlífi og á ferðinni. Hulstrin eru gerð úr endingargóðum efnum sem vernda símann gegn höggum og rispum. Stílhrein áferð og vönduð smáatriði gera Urban Explorer að fullkomnu vali fyrir þá sem vilja bæði öryggi og karakter í hverju skrefi.
CARE Solo fyrir Samsung - Lúxus vegan leður sem ver símann þinn.
Hulstur sem sameinar glæsilega hönnun og áreiðanlega vörn og lætur símann þinn líta jafn vel út og þér líður með hann í hendinni. Mjúkt og dýravænt veganleður gefur hulstrinu fágað yfirbragð á meðan höggvörn sem hefur verið fallprófuð úr allt að 2,4 metrum ver símann gegn daglegum höggum og slysum. Þunn og þægileg hönnun liggur vel í hendi, styður MagSafe fyrir þráðlausa hleðslu og aukin myndavélarvörn heldur minningunum þínum öruggum – þar sem stíll, ending og virkni fara fullkomlega saman.