Öflugur 5G snjallsími með skýrum skjá, langri rafhlöðuendingu og frábærri frammistöðu fyrir daglega notkun.
Fáðu góða upplifun með snjallsíma sem sameinar hraða, glæsilega hönnun og snjalla eiginleika í daglegri notkun. Skýr skjár, öflug rafhlaða og 5G tenging halda þér tengdum allan daginn á meðan fjölhæf myndavél fangar augnablikin með nákvæmni og skýrleika, fullkominn félagi fyrir vinnu, afþreyingu og allt þar á milli.
Galaxy S25 FE, Flaggskips eiginleikar á hagstæðu verði!
S25 FE Státar af stílhreinni hönnun, með 6,7" Dynamic AMOLED 2x skjá sem hefur 120 Hz endurnýjunartíðni, öflugum örgjörva, 4900 mAh rafhlöðu og þremur myndavélum.
Þegar þú kaupir Samsung Galaxy S25 FE færðu Samsung Galaxy Buds3 Silver með í kaupauka. Sækja þarf um kaupaukann á samsungmobile.is . Tilboðið gildir frá 25. september til 23. október 2026.
Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Öflug Galaxy AI upplifun, glæsilegur skjár og frábær myndavél fyrir hvert augnablik.
Stór 6,7" FHD+ skjár með 120Hz endurnýjunartíðni skilar góðri upplifun við allt frá samfélagsmiðlum og streymi yfir í leiki og daglega notkun. Öflugur Exynos 2500 örgjörvi sér um hraða og lipra vinnslu á meðan 4.900mAh rafhlaða býður upp á allt að 29 klukkustunda myndbandsspilun. Síminn styður einnig hraðhleðslu með allt að 45W hleðslu með snúru og 15W þráðlausri hleðslu. Myndavélakerfið býður upp á 50 MP aðalmyndavél, 12MP gleiðlinsu, 8MP aðdráttarlinsu með 3x optískum aðdrætti og 12MP frammyndavél. Sterkbyggður álrammi, Gorilla Glass Victus+ og IP68 vatns- og rykvörn gera símann vel undirbúinn fyrir daglega notkun.
Þegar þú kaupir Samsung Galaxy S26 FE færðu Samsung Galaxy Buds 4 svart með í kaupauka. Sækja þarf um kaupaukann á samsungmobile.is . Tilboðið gildir frá 29. september til 10. október 2026.
Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Galaxy A36, snjallsíminn sem sameinar glæsilega hönnun, öfluga frammistöðu og ótrúlega myndavél, allt á frábæru verði. Með 6,7” Super AMOLED 120Hz skjá, hraðvirkum Snapdragon 6 Gen 3 örgjörva og langri rafhlöðuendingu færðu snjallsíma sem fylgir þér í öllu sem þú gerir.
Galaxy A56 – Glæsileg hönnun, frábær myndavél og öflug frammistaða.
Samsung Galaxy A56 er frábær snjallsími fyrir þá sem vilja öfluga frammistöðu og glæsilega hönnun á góðu verði. Hann býður upp á stóran og skýran skjá sem hentar fullkomlega fyrir streymi, samfélagsmiðla og leikjaspilun, ásamt hraðvirkum örgjörva sem sér til þess að allt gangi mjúklega fyrir sig. Með öflugri myndavél nærðu skörpum og litríkum myndum í öllum aðstæðum og endingargóð rafhlaða tryggir að síminn fylgi þér allan daginn. Galaxy A56 er snjallt val fyrir daglega notkun – með gæðum sem þú finnur strax.
Samsung Galaxy S26 – kraftur gervigreindar, byltingarkennd myndavél og hönnun sem skilgreinir framtíð snjallsímans.
Galaxy S26 er nýjasta undur Samsung. Frábær gervigreindarsími með enn betri myndavél. Síminn státar fallegri og vel heppnaðri hönnun og tækni sem er engri lík.
Samsung Galaxy S26+ – meira skjápláss, meiri kraftur og Galaxy AI sem færir upplifunina á stærra svið.
Galaxy S26+ er nýja undrið frá Samsung. Glæsilegur gervigreindarsími með enn betri myndavél. Síminn státar fallegri og vel heppnaðri hönnun og tækni sem er engri lík.
Galaxy S24 – Hraði sem þú finnur, myndir sem vekja athygli.
Þessi ofursnjalli farsími hefur stór fótspor að feta í frá forvera sínum og gerir gott betur en að fylla upp í þau. Nýja S-línan frá Samsung brýtur blað í sögu farsímans með einstakri nýtingu gervigreindar til þess að einfalda þér lífið. Símtækið bíður nú upp á rauntímaþýðingu milli tungumála í símtölum og enn betri ljósmyndun og myndbandsupptöku. Nýr S24 státar fallegri og vel heppnaðri hönnun og tækni sem hefur sópað að sér verðlaunum um allan heim. Samsung Galaxy S24 er hér til einfalda þér þitt daglega líf.
Galaxy S25 Edge – Þynnri hönnun, toppafköst og stíll sem sker sig úr.
Hönnun sem skarar fram úr, hámarks afköst, myndavélakerfi sem fanga hvert augnablik niður í minnstu smáatriði og öflug gervigreind með Galaxy AI. S25 Edge er aðeins 5,9 mm á þykkt og 163 g á þyngd, einn léttasti og þynnsti síminn á markaðnum í dag.