CARE 3-in-1 fyrir Samsung Galaxy S26 línuna – heildarvörn sem heldur símanum þínum öruggum frá öllum hliðum.
CARE 3-in-1 veitir alhliða vernd í einni snjallri lausn. Settið sameinar skjávörn, hulstur og linsuvörn sem vinna saman að því að verja símann gegn rispum, höggum og daglegu sliti. Stílhrein hönnun tryggir að útlit og notendaupplifun helst óskert. Fullkomið fyrir þá sem vilja áhyggjulausa notkun og heildarvörn frá fyrsta degi.
PanzerGlass með fastfit-in-a-box tryggir hnökralausa ásetningu og hámarks öryggi fyrir skjáinn þinn.
PanzerGlass skjávörnin með fastfit-in-a-box kerfinu tryggir auðvelda og nákvæma uppsetningu án ryks eða skekkju. Hún er framleidd úr 60% endurunnu efni og veitir framúrskarandi vörn gegn rispum, höggum og falli. Sérstök varnarhúð heldur skjánum tærum og Ultra-Wide Fit hönnun tryggir fulla þekju án þess að hindra notkun hulsturs. Öflug, einföld og áreiðanleg vernd fyrir símann þinn.
PanzerGlass 2-Way Privacy verndar bæði skjáinn og upplýsingarnar þínar.
Sérstök skjásía sem gerir innihald skjásins nánast ósýnilegt þeim sem sitja við hliðina á þér, hvort sem það er í strætó, á kaffihúsi eða á skrifstofunni, en á sama tíma er skjárinn kristaltær fyrir þann sem horfir beint á hann. Skjávörnin er framleidd úr 60% endurunnu gleri, með fingrafara- og fitufráhrindandi húð og veitir jafnframt framúrskarandi vörn gegn rispum og höggum. Ultra-Wide Fit hönnun tryggir fulla þekju skjásins án þess að hindra notkun hulsturs fyrir hámarks vernd og hugarró í daglegu lífi.