- Um vöruna
Þau allra bestu frá Apple
Heyrnartólin eru með H1 örgjörva í báðum eyrum, í samvinnu við sérhannað hljóðhönnun og framúrskarandi hugbúnað skila Airpods Max þér frábæru hljóði og frábærri upplifun. Heyrnartólin eru gerð úr möttu ryðfríu stáli með mjúku mesh höfuðbandi og eyrnapúðum sem er hægt að fjarlægja og skipta út fyrir nýjann í til dæmis öðrum lit og festist á með segli
Heyrnartólin eru með víðsfrægu kórónunni frá Apple sem margir þekkja úr Apple úrunum en hún er notuð til að hækka og lækka, skipta um lög eða jafnvel svara í símann. Frábær hljóðeinangrun ásamt gegnsæis stillingu svo þú heyrir bæði útundan þér og það sem þú ert að spila á sama tíma. Ekki nóg með það þá skynja þau sjálfkrafa þegar þú setur þau á þig og tengjast við tækið þitt.Til að sporna við umhverfishljóðum eru heyrnartólin með 6 míkrafóna sem snúa frá þér og 2 sem snúa að þér til að einangra rödd þína þegar þú ert að tala í símann.
Airpods Max koma með stillingu sem þeir kalla Spatial Audio. Þessi tækni gerir það að verkum að þegar þú ert að horfa á bíómynd eða sjónvarpsþátt þá rekja þau höfuðhreyfingar þínar og stilla hljóðið eftir því Heyrnartólin endast í allt að 20 klukkustundir í hlustun á einni hleðslu og gefur 5 mínútna hleðsla þér allt að 1.5 tíma af hlustun!