- Um vöruna
- Eiginleikar
Nýr úlnliðsfélagi
Apple hefur nú bætt í fjölskylduna nýju og uppfærðu snjallúri. Apple Watch Series 8 er eitt af þeim nýju en það hefur nýjan hitanema og þannig ætti úrið að geta mælt líkamshita með nokkuð góðri nákvæmni sem Apple segir t.d. geta nýst konum að fylgjast með tíðahring og egglosi, gögn sem eru dulkóðuð og geymd á úrinu sjálfu og fara því aldrei upp í skýið.
Vertu í sambandi án símans
Apple Watch 8 LTE er útbúið þeirri frábæru tækni að taka við farsímaáskrift beint í úrið, þú getur þú haldið út í daginn án þess að hafa símann í vasanum. Með Úræði hjá Símanum getur þú tekið á móti símtölum eða hlutsað á hlaðvörp og tónlist allt í úrinu, njóttu þess að vera í sambandi án símans með Úræði. Smelltu hér til að kynna þér Úræði.
Sterkara en áður
Sömu nýjungar og fóru í það að hann skjáinn voru nýttar til að styrkja úrið en fremur. Hönnunin á skjánum ýtir undir styrkleika hans og spornar gegn höggskemmdum, en ekki nóg með það er úrið IP6X rykvarið og WR50 vatnsvarið.
Heilbrigðari lífsstíll með Apple Watch
Áttunda kynslóð Apple úrana er komið til að hjálpa þér að skija heilsuna þína betur til að þú getur náð markmiðum þínum. Nýr hitaskynjari hefur litið dagsins ljós sem hjálpar konum að skilja tíðahringinn sinn betur í samvinnu við hjartsláttarskynjarann. Þessi nýjung samhliða öllum þeim gögnum sem Apple Watch sýnir í Apple Health smáforritinu eins súrefnismagnið í blóðinu þínu gera úrið að þínum helsta heilsufélaga.
Sofðu betur með nýju úri
Apple úrið fylgist ekki einungis með svefntímanum þínum heldur líka gæðum. Svefn appið sýnir hversu lengi þú varst í REM svefni eða djúpsvefni svo þú getir séð hver gæði svefnsins voru.
Passar upp á þig í umferðinni
Apple kynnti splunkunýjan eiginleika í Apple Watch sem kallar Crash Detection. Úrið getur nú skynjað það ef þú lendir í bílslysi og haft samband við neyðaraðila.