- Um vöruna
- Eiginleikar
Hraðasti kjarni allra tíma í Galaxy
Samsung Galaxy S23 Ultra er knúin áfram að hraðasta örgjörva sem Samsung hefur nokkurn tímann sett í síma. Snapdragon 8 Gen 2 flagan vinnur sína vinnu í nánast öllum hornum símans. Niðurstaðan er kristaltærar myndir öllum tímum dags eða nætur og enn betri upplifun í öllum aðgerðum hvort sem það eru tölvuleikir eða vinna.
Bjartasti skjárinn fyrir björtustu dagana
Þessi fallega hannaði sími skartar dýnamískum AMOLED 2x skjá með Vision Booster sem gerir símann fullkominn í mikilli birtu þar sem oft er erfitt að sjá á skjáinn. Ekki nóg með það er skjárinn með dýnamíska endurnýjunartíðni upp á 1Hz upp í 120Hz sem gerir allar hreyfingar silkimjúkar og stillir hann þessa endurnýjunartíðni sjálfur eftir því sem þú ert að gera hverju sinni. Allt til þess að síminn endist þér sem lengst án þess að þurfa hleðslu.
Snjöll rafhlöðuending?
5000 mAh rafhlaðan sem er í símanum í samvinnu við endurbætta gervigreind Samsung gerir rafhlöðuendinguna í Samsung S23 Ultra betri enn nokkru sinni fyrr. Gervigreindin sparar raflhöðuna þína skynsamlega fyrir þá tíma sem þú þarft mest á henni að halda, svo þú verðir ekki orkulaus á mikilvægum tímum. Ofur-hraðhleðsla er virk í símtækinu sé það tengt við 45W hleðslukubb svo þú fáir sem mesta hleðslu á sem stystum tíma.
Falleg og sterk hönnun
Samsung Galaxy S23 Ultra er smíðaður með Gorrilla Glass Victus+ að framan og aftan. Gorrilla Glass Victus+ er eitt sterkasta gler sem völ er á í snjallsíma svo síminn þinn þolir betur högg og rispur. Rammi símans er gerður úr sterkasta áli sem framleitt hefur verið í Samsung snjallsíma og ver símann þinn eins og brynja. Þetta væri ekki hetja nema ef þú gætir notað símann hvar sem er hvenær sem er, S22 Ultra er varinn með IP68 ryk- og rakavörn þannig þú getur notað hann hvort sem þú ert úti í rigningunni eða beint eftir æfingu.
Myndirnar sem þú sérð í draumi
200 megapixla linsan í símanum er ofurkröftum líkust. Myndavélin er útbúin stærsta skynjara sem sést hefur í Samsung síma, hann skynjar þegar þú ert í aðstæðum með litlu ljósi og aðlagar myndvinnsluna eftir því til þess að framkalla tærar myndir með öllum smáatriðum. Samsung hefur þróað gler sem kallast Super Clear Glass sem hylur alla bakmyndavélina og er 200 megapixla víðlinsa með Super Clear Leans en báðar þessa lausnir lágmarka glampa á linsuna til að skila sem skýrustu myndinni í galleríið þitt.