Xiaomi 15 – Glæsileg hönnun, öflug frammistaða og góð uupplifun.
Skýr og bjartur skjár skilar framúrskarandi upplifun við streymi, leikjaspilun og daglega notkun á meðan öflug myndavél fangar skarpar og litríkar myndir í hvaða aðstæðum sem er. Hraðvirkur örgjörvi og snögg hleðsla tryggja að allt gangi mjúklega fyrir sig Xiaomi 15 er sími fyrir þá sem vilja gæði og afköst án málamiðlana. Síminn er með 12GB RAM og 256 GB minni og styður WiFi 7.
Xiaomi 15 Ultra – Hámarksafl, einstök myndavél og lúxus í hverju smáatriði.
Xiaomi 15 Ultra er hannaður fyrir þá sem krefjast hins allra besta. Með einstakri myndavél sem skilar faglegum gæðum, öflugum örgjörva og stórum, litríkum skjá færðu upplifun á hæsta stigi. Premium hönnun og vönduð smáatriði undirstrika lúxusinn, á meðan öflug rafhlaða og hraðhleðsla halda þér gangandi allan daginn. Þetta er sími sem sameinar hámarksafl og einstaka notendaupplifun.
Xiaomi 15T – Hraði, gæði og nútímaleg hönnun á frábæru verði.
Xiaomi 15T býður upp á mikla frammistöðu og nútímalega hönnun á afar aðlaðandi verði. Skýr skjár og öflug myndavél gera hann fullkominn fyrir samfélagsmiðla, myndbönd og daglega notkun. Hraður örgjörvi og góð rafhlöðuending tryggja að síminn haldi í við þig, hvort sem þú ert í vinnu eða leik. Xiaomi 15T er snjallt val fyrir þá sem vilja kraft og gæði á hagstæðu verði.
Xiaomi 15T Pro – Meira afl, meiri hraði og myndavél á næsta stigi..
Xiaomi 15T Pro lyftir upplifuninni upp á næsta stig með auknu afli, framúrskarandi myndavél og einstakri hraðhleðslu. Hann sameinar afkastamikinn búnað og glæsilega hönnun sem sker sig úr, ásamt skjá sem skilar skýrum og lifandi litum. Þetta er sími fyrir þá sem vilja meira – meiri hraða, meiri afköst og meiri möguleika í hverjum degi.
139.990 kr
Xiaomi – Vefverslun Símans
Vefkökur
Við notum vefkökur til þess að bæta vefinn okkar svo upplifunin þín verði sem best.