Vörur merktar með 'aukahlutir'

Raða vörum eftir

Apple

Airpods 5

Betri hljómur og öflug virk hljóðeinangrun.

AirPods 5 bjóða upp á nýja hljóðhönnun og næstu kynslóð Adaptive EQ sem skilar betri og nákvæmari hljómi. Heyrnartólin eru með allt að 1,5 sinnum öflugri virkri hljóðeinangrun (ANC) en í fyrri kynslóð.

frá 24.990 kr

    Apple

    iPhone 18 Pro/Pro Max TechWoven MagSafe hulstur

    Þetta ofna hulstur með MagSafe frá Apple gefur iPhone 18 Pro/Pro Max persónulegan stíl og góða vörn.

    Hulstrið er úr sérhönnuðu ofnu efni og er úr 100% endurunnu pólýester. Marglitu garni er ofið saman á Jacquard-vefstól í áþreifanlega áferð með djúpum og ríkulegum lit. Hliðar hulstursins eru með lagi af létt áferðarmiklu TPU fyrir betra grip. Fágaðir takkar úr anodíseruðu áli gefa nákvæma áþreifanlega svörun.

    Hulstrið er með tveimur festipunktum svo hægt er að festa CrossBody-ólina tryggilega og nota iPhone án þess að halda á honum.

    Með innbyggðum seglum sem staðsetja sig fullkomlega á iPhone 18 Pro/Pro Max býður þetta hulstur upp á auðveldari og hraðari þráðlausa hleðslu. Í hvert einasta skipti. Þegar komið er að hleðslu læturðu hulstrið einfaldlega vera á iPhone og smellir MagSafe-hleðslutækinu á eða setur það á Qi2- eða Qi-hleðslutæki.

    Eins og öll önnur hulstur hönnuð af Apple hefur það farið í gegnum þúsundir klukkustunda af prófunum á hönnunar- og framleiðslustigi. Þannig að auk þess að vera flott á að líta verndar það iPhone fyrir rispum og höggum.

    11.990 kr

    Apple

    iPhone 18 Pro/Pro Max Sílikon MagSafe hulstur

    Silikonhulstrið með MagSafe er hannað af Apple sérstaklega fyrir iPhone 18 Pro / Pro Max.

    Hulstrið er gert úr 45% endurunnu silikonefni og er með silkimjúkri áferð að utan sem gott er að halda á og að innan er það fóðrað með mjúkum örtrefjum fyrir enn betri vörn.
    Með innbyggðum seglum sem passa fullkomlega við iPhone 18 Pro / Pro Max er einfalt að hlaða símann með þráðlausri hleðslu.
    Eins og öll hulstur sem Apple hannar hefur þetta farið í gegnum þúsundir klukkustunda af prófunum á hönnunar- og framleiðslustigi.
    9.990 kr

    Apple

    iPhone 18 pro/ pro max glært MagSafe hulstur

    Gegnsætt og rispuvarið hulstur til að hlífa iPhone símanum þínum.

    Hulstrið er með innbyggðum seglum til að tryggja örugga festingu fyrir þráðlaus hleðslutæki.
    Öll efni í hulstrinu eru gerð til að hindra að það gulni með aldri.
    9.990 kr

      Apple

      Apple Pencil (USB-C)

      Njóttu þess að nýta skjáinn enn betur með Apple Pencil.

      Apple Pencil tengist og hleðst á einfaldan hátt með USB-C snúru og festist með segli á hlið iPad þegar hann er ekki í notkun. Hann býður upp á náttúrulega og nákvæma upplifun við að skrifa, teikna og vinna beint á skjánum, líkt og með hefðbundnum blýanti á pappír. Nákvæm skynjun á hreyfingum og halla gerir þér kleift að stjórna línum, skyggingum og öðrum myndrænum áhrifum á þægilegan hátt.
      19.990 kr

        agood company

        Premium sett 6-in-1 fyrir iPhone

        Fullkominn pakki fyrir nýja símann sem sameinar vörn, þægindi og hraðhleðslu í einu setti.

        Glært hulstur veitir allt að 3 metra fallvörn, er með vörn gegn gulnun og þægilega hönnun. Varnarglerið er ofurþunnt og rispuþolið með 9H hörku, framleitt úr efni sem inniheldur 60% endurunnið gler og hjálpar til við að verja skjáinn gegn rispum og höggum án þess að breyta náttúrulegri upplifun hans.
        Settið inniheldur einnig vörn fyrir myndavélina, tvo MagSafe hringi og 30W Belkin hleðslukubb. Þannig færðu allt það helsta til að verja símann og gera daglega notkun hans enn þægilegri í einum hentugum pakka.

        Inniheldur:
        Glært hulstur
        2 Magsafe hringi, svartan og hvítan
        Vörn fyrir myndavélina
        belkin 30w hleðslukubb

        Hulstrið er hannað til að endast og því býður agood upp á að fá nýtt agood hulstur ef þetta hulstur slitnar eða skemmist við eðlilega daglega notkun.
        Til að fá endurnýjun á hulstri fyllir þú út beiðni hjá agood endurnýjun á hulstri og færð persónulegan afsláttarkóða í tölvupósti sem þú notar við kaup á nýju hulstri hjá þeim.
        Gamla hulstrinu má síðan skila aftur í endurvinnslu hjá Símanum.
        Þjónustan nær ekki til taps, þjófnaðar, vísvitandi skemmda eða þegar skipt er um símagerð. Endurnýjun er háð staðfestingu frá söluaðila og framboði.
        7.990 kr

          Soundboks

          Soundboks burðaról

          Þægileg burðaról sem gerir þér auðvelt að taka hátalarann með hvert sem leiðin liggur.

          Burðarólin auðveldar þér að taka Soundboks hátalarann með þér hvert sem er.
          Ólin er bólstruð fyrir aukin þægindi og býður upp á fjölbreytta stillimöguleika svo auðvelt er að laga hana að þér.

          Athugið að hátalari fylgir ekki með.
          12.990 kr

            Samsung

            Galaxy S26 FE hulstur

            Samsung Galaxy hulstur – hámarks vernd og stílhrein hönnun.

            Samsung hulstur eru hönnuð til að falla fullkomlega að tækinu og veita áreiðanlega vörn gegn daglegu sliti, rispum og höggum. Hulstrin falla nákvæmlega að tækinu sem tryggir greiðan aðgang að öllum hnöppum og tengjum á meðan stílhrein og vönduð hönnun undirstrikar nútímalegt útlit símans.
            Létt og þægilegt í hendi, en samt sterkt og endingargott , fullkomið val fyrir þá sem vilja vernda Samsung Galaxy símann án þess að fórna stíl.
            frá 4.490 kr

            Apple

            iPhone Duo hulstur

            Hulstur sem sameina glæsilega hönnun, vernd og MagSafe hleðslu fyrir betri upplifun á hverjum degi.

            Léttari hulstrin frá Apple eru hönnuð í tveimur hlutum sem umlykja símann og veita honum góða vernd bæði að framan og aftan án þess að bæta við óþarfa fyrirferð.
            Hulstrið er framleitt úr endingargóðu pólýkarbónati með mattri áferð sem gefur því fágað og nútímalegt útlit. Litirnir eru vandlega valdir til að falla fallega að hönnun símans.
            Innbyggðir seglar tryggja nákvæma staðsetningu og þægilega MagSafe-tengingu ásamt hraðari þráðlausri hleðslu. Þú getur hlaðið símann án þess að fjarlægja hulstrið, hvort sem þú notar MagSafe, Qi2 25W eða Qi-vottað þráðlaust hleðslutæki.

            Folio með standi hulstrin frá Apple eru hönnuð til að veita símanum góða vernd.
            Hulstrið er klætt sérhönnuðu TechWoven-efni sem sameinar vandað útlit og þægilega viðkomu. Innbyggður standur gerir þér kleift að stilla símann í mismunandi sjónarhorn, hvort sem þú ert að horfa á myndbönd, lesa eða taka FaceTime-símtöl. Þegar standurinn er ekki í notkun fellur hann snyrtilega aftur að hulstrinu.
            Innbyggðir seglar tryggja nákvæma staðsetningu og auðvelda MagSafe-tengingu ásamt hraðari þráðlausri hleðslu. Þú getur hlaðið símann án þess að fjarlægja hulstrið, hvort sem þú notar MagSafe, Qi2 25W eða Qi-vottað þráðlaust hleðslutæki.
            frá 14.990 kr
              Vörur merktar með 'aukahlutir' – Vefverslun Símans