Balance Phone Pro

Balance 75547
Snjallsími sem hjálpar þér að endurheimta fókus, tíma og ró í stafrænum heimi.

Balance Phone Pro er hannaður til að draga úr stafrænum truflunum og hjálpa þér að nýta tæknina á markvissan hátt. Með sérstöku stýrikerfi sem lokar á samfélagsmiðla, leiki, fjárhættuspil og annað truflandi efni færðu einfaldari og rólegri upplifun sem styður við betri einbeitingu, jafnvægi og heilbrigðari stafrænar venjur.

Balance Phone Pro heldur samt öllum helstu forritunum sem þú þarft í daglegu lífi, eins og skilaboðum, leiðsögn, bankaþjónustu og tónlist. Síminn er snjöll lausn fyrir foreldra sem vilja styðja börn og unglinga í að þróa heilbrigðari stafrænar venjur. Hann hentar líka fullorðnum sem vilja meiri ró og fókus sem og þeim sem vilja takmarka aðgengi að truflandi efni án þess að fórna kostum nútímatækni.

Balance Phone Pro er Samsung Galaxy S25 128GB með Balance OS stýrikerfi.

Vöruupplýsingablað

159.990 kr

eða 14.294 kr./mán í 12 mánuði og engin útborgun*
Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista
Balance Phone Pro – Vefverslun Símans