iPhone 15 – Ný kynslóð af afli, betri myndavél og Dynamic Island sem breytir öllu.
iPhone 15 fær uppfærslu á myndavélinni sem verður 48MP í stað 12MP áður sem er ótrúlega stórt stökk. Rafhlaðan er einnig stærri og dugar í allt að heilan dag ásamt því að iPhone 15 keyrir á A16 örgjörva Apple sem var í iPhone 14 Pro og Pro Max símunum. Dynamic Island skjárinn sem kynntur var til leiks í fyrra í iPhone 14 Pro og Pro Max er nú í öllum iPhone símum. Þessi litli skjár minnkar og stækkar eftir þörfum og aðlagar sig að þeim forritum sem eru í gangi hverju sinni með mismunandi virkni og eiginleikum. Skjárinn er 6.1" Super Retina XDR skjár sem nær allt upp í 1.600 nits birtustig þegar horft er t.d. á Dolby Vision efni, HDR myndir og myndbönd.
Nokia 3210 4G – Klassík sem lifir áfram í nútímanum.
Vilt þú spila Snake aftur?
Hinn goðsagnakenndi Nokia 3210 4G er mættur aftur í nýjum búning svo að hringja símtöl, senda skilaboð eða einfaldlega spila Snake er ekkert mál. Hann er með 2,4" IPS skjá, 2 MP myndavél með allt að 720p upptöku og góða 1450 mAh rafhlöðu.
Nokia 2660 Flip – Einfaldur, samanbrjótanlegur og hannaður til að endast.
HMD 2660 samlokusíminn er frá þeim sem framleiða í dag Nokia farsímana, hann er með 2,8" LCD-skjá og 0,3 MP myndavél
Einnig með Bluetooth 4.2 og styður MicroSD minniskort upp að 32GB.
1450 mAh rafhlaða kemur símanum í gegnum nokkra daga á einni hleðslu eftir notkun.
Frábær sími fyrir börn eða þá sem vilja hvíla snjallsímann.