Ótrúleg hönnun og allt það besta úr heimi gervigreindar og nýjustu tækni eins og enn betri myndavélar, kraftmeiri örgjörvi sem tryggir hnökralausa notkun. Z Fold6 er ekki aðeins öflugari en fyrri útgáfur og með bjartari skjá heldur einnig þynnri og léttari.
Frábær yfir-eyru heyrnatól fyrir þá sem krefjast stíls, þæginda og framistöðu. Með ríkuleg hljómgræði og allt að 25dB hljóðeinangrun, Valencia sameinar hversdags þægindi við sambrjótanlegu, ferðavænu hönnunina. Með 50 tíma þráðlausum spilunartíma leyfir Valencia þér ða nóta tónlistarinnar, hlaðvarpa eða símtala áhyggjuluast, hvert sem dagurinn leiðir þig.
Easypix V64 Flip er framúrskarandi stafræn myndavél fyrir hvern sem vill ná að grípa minnigar á einfaldan hátt Niður fellanlegur 3" LCD skjár og flott valmynd gerir notkun leik einn. snúðu skjánum og selfie leikurinn er einfaldari en nokkru sinni áður 13 Megapixel og 18x stafrænn aðdráttur (e. Zoom) tryggir flottar myndir og myndbönd þrátt fyrir léleg birtuskilirði þökk sé innbyggðu ljósi.
iPhone 15 fær uppfærslu á myndavélinni sem verður 48MP í stað 12MP áður sem er ótrúlega stórt stökk. Rafhlaðan er einnig stærri og dugar í allt að heilan dag ásamt því að iPhone 15 keyrir á A16 örgjörva Apple sem var í iPhone 14 Pro og Pro Max símunum. Dynamic Island skjárinn sem kynntur var til leiks í fyrra í iPhone 14 Pro og Pro Max er nú í öllum iPhone símum. Þessi litli skjár minnkar og stækkar eftir þörfum og aðlagar sig að þeim forritum sem eru í gangi hverju sinni með mismunandi virkni og eiginleikum. Skjárinn er 6.1" Super Retina XDR skjár sem nær allt upp í 1.600 nits birtustig þegar horft er t.d. á Dolby Vision efni, HDR myndir og myndbönd.
Gefðu snjallsímanum kærkomið frí og njóttu augnabliksins með Barbie símanum. Engin öpp, minna áreiti og þú tengist núvitundinni með því að aftengja þig frá snjallsímanum. Barbie-síminn er einfaldur samlokusími sem styður við símtöl, SMS skilaboð og það helsta sem gömlu góðu símarnir gerðu. Frábær félagi með geggjaða rafhlöðuendingu.
Frábært og flott snjallúr með hefðbundnum vísum, sem færa sig frá snjallskjánum þegar þú vilt vinna á skjánum. Rafhlaðan endist allt að 5 daga sem snjallúr og vísarnir ganga einn dag aukalega. 15 mínútur í hleðslu skila sér í einum degi í rafhlöðuendingu. Fáðu tilkynningar um tölvupóst, smáskilaboð, símtöl og margt fleira í úrið þegar það er tengt við snjallsíma. Getur svarað þeim ef þú ert með Android síma. Notaðu snertilausan greiðslumöguleika úrsins til þess að versla á hlaupum eða hvar sem er. Auðvelt er að setja tímatöku í gang ásamt fleiri eiginleikum.
Garmin Lily 2 Active er lítið og stílhreint úr gert fyrir æfingar og heilsu en falinn snertiskjár og myndstrað gler gefur því fágað útlit. Innbyggt GPS fyrir æfingar eins og gögnu, hlaup og fleira. Úrið nær allt að 9 daga rafhlöðuendingu, hefur púlsmælir, heilskráningu, svefnskráningu og fleira. Tengist við samhæfa iPhone eða Android síma og birtir snjalltilkynningar frá símanum.
Fjórða kynslóðin er mætt! Betri hljómur, tengimöguleikar við allt að fimm Soundboks og möguleikar fyrir þig til að gera skreyta hátalarann eins og þú vilt. ATH. Hleðslutæki fylgir ekki með.