iPhone 18 Pro Max

Apple
iPhone 18 Pro Max tekur Pro-upplifunina skrefinu lengra með fullkomnasta myndavélakerfi Apple til þessa og bestu rafhlöðuendingu í iPhone frá upphafi.

Fullkomnasta myndavélin í iPhone, öflug A20 Pro-flaga, ný 48 MP Fusion-aðalmyndavél með stillanlegu ljósopi, háþróuð gufukæling og allt að 45 klukkustunda myndspilun gera Pro Max að öflugum iPhone fyrir þau sem vilja meira.

Fyrsta sending væntanleg til Símans 18. september. Skráðu þig á forskráningarlista og við heyrum í þér um leið og síminn lendir hjá okkur!


Vöruupplýsingablað

239.990 kr

eða 21.194 kr./mán í 12 mánuði og engin útborgun*
Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista

Hámarksafköst með A20 Pro

A20 Pro er öflugasta Pro-flaga Apple til þessa. Nýr 6 kjarna örgjörvi, 7 kjarna grafíkörgjörvi og Dual 16-kjarna Neural Engine skila meiri afköstum fyrir krefjandi leiki, myndvinnslu og gervigreind. Ný kynslóð gufukælingar dreifir hita betur og hjálpar símanum að viðhalda miklum afköstum lengur.

Besta rafhlöðuending í iPhone frá upphafi

iPhone 18 Pro Max býður upp á allt að 45 klukkustunda myndspilun eða 6 klukkustundum lengri en iPhone 17 Pro Max. Með stærri rafhlöðu og betri orkunýtni færðu allt að 30 klukkustunda notkun á einni hleðslu með iPhone 18 Pro Max. Og þarftu að hlaða hratt? Aðeins 5 mínútna hleðsla getur gefið allt að 7 klukkustunda myndspilun, svo þú getur haldið áfram án þess að bíða lengi eftir rafhlöðunni.

Fullkomnasta myndavélin í iPhone

Ný 48 MP Fusion-aðalmyndavél kemur með stillanlegu ljósopi í fyrsta sinn í iPhone. Ljósopið aðlagast sjálfkrafa birtu og dýptarskerpu og skilar betri myndum við litla birtu, skarpari smáatriðum og meiri stjórn á útliti myndarinnar. Nýjar Pro-stillingar gefa þér enn meiri stjórn og gera þér kleift að stilla meðal annars ljósop, lokarahraða og hvítjöfnun beint í myndavélarappinu.

Öflugri vinnsla með gervigreind

A20 Pro-flagan færir iPhone 18 Pro Max enn meiri kraft fyrir gervigreind. Nýir Neural Accelerators og Dual 16-kjarna Neural Engine gera símanum kleift að takast á við stærri og flóknari gervigreindarverkefni.

Ný kynslóð Apple Intelligence

iPhone 18 Pro Max kemur með iOS 27 og nýjustu snjalleiginleikum Apple. Apple Intelligence færir þér meðal annars háþróaða myndvinnslu, Writing Tools og Visual Intelligence. Siri AI er nýr og öflugri gervigreindaraðstoðarmaður Apple, en framboð eiginleika getur verið mismunandi eftir tungumálum og landsvæðum.

Öflugar tengingar

Ný N1-flaga frá Apple styður Wi-Fi 7, Bluetooth 6 og Thread. Að auki býður iPhone 18 Pro Max upp á hraðar 5G-tengingar og eSIM, svo þú færð öflugar og öruggar tengingar hvert sem þú ferð.

Netkerfi
Fjarskiptastaðall
GSM / CDMA / HSPA / EVDO / LTE / 5G
iPhone 18 Pro Max – Vefverslun Símans