Mi Tv Stick gerir þér kleyft að breyta hefðbundnu sjónvarpi í snjallsjónvarp. Græjan lítur út eins og hefðbundinn USB kubbur sem er stungið í samband við HDMI tengið á sjónvarpinu þínu og þar með er sjónvarpið þitt snjallt. Tækinu er stýrt með lítilli fjarstýringu sem þú getur notað til þess að nota forrit eins og Sjónvarp Símans, Youtube og Spotify