Sá fyrsti sinnar kynslóðar. Samanbrjótanlegur og með stærsta iPhone skjá frá upphafi.
iPhone Duo markar nýjan kafla í sögu iPhone. Þegar hann er opinn er hann þynnsti iPhone frá upphafi og 7,6 tommu innri skjárinn er stærsti iPhone-skjárinn til þessa. Kraftmikil A20 Pro-flaga, 48 MP myndavél og rafhlaða sem endist allan daginn gera hann tilbúinn fyrir bæði vinnu og afþreyingu.
Skráðu þig á póstlista og við heyrum í þér um leið og ný eintök lenda hjá okkur!
iPhone 18 Pro Max tekur Pro-upplifunina skrefinu lengra með fullkomnasta myndavélakerfi Apple til þessa og bestu rafhlöðuendingu í iPhone frá upphafi.
Fullkomnasta myndavélin í iPhone, öflug A20 Pro-flaga, ný 48 MP Fusion-aðalmyndavél með stillanlegu ljósopi, háþróuð gufukæling og allt að 45 klukkustunda myndspilun gera Pro Max að öflugum iPhone fyrir þau sem vilja meira.
Skráðu þig á póstlista og við heyrum í þér um leið og síminn lendir hjá okkur!
iPhone 18 Pro er endurhannaður frá grunni til að skila afköstum í algjörum sérflokki.
iPhone 18 Pro sameinar fullkomnasta myndavélakerfi Apple til þessa, öfluga A20 Pro-flögu og framúrskarandi rafhlöðuendingu. Ný kynslóð gufukælingar tryggir stöðug afköst þegar mikið reynir á og iOS 27 færir þér nýja og snjallari möguleika.
Skráðu þig á póstlista og við heyrum í þér um leið og síminn lendir hjá okkur!
AirPods 5 bjóða upp á nýja hljóðhönnun og næstu kynslóð Adaptive EQ sem skilar betri og nákvæmari hljómi. Heyrnartólin eru með allt að 1,5 sinnum öflugri virkri hljóðeinangrun (ANC) en í fyrri kynslóð.
Apple Watch 12 býður upp á nákvæmustu hjartsláttarmælingar í snjallúri til þessa.
Apple Watch Series 12 hjálpar þér að fylgjast enn betur með heilsunni, hreyfingunni og endurheimtinni. Nýtt skynjarakerfi, S11-flaga og tíðari hjartsláttarmælingar gefa þér betri innsýn í líkamann, á meðan nýjar æfingamælingar og Workout Buddy hjálpa þér að ná meira út úr hreyfingunni. Úrin koma í tveim stærðum 42mm og 46mm og eru með fallegum álramma.
Apple Watch Ultra 4 býður upp á lengstu rafhlöðuendingu í Apple Watch til þessa.
Apple Watch Ultra 4 er hannað fyrir þig sem vilt fá meira út úr hverri æfingu. Nákvæmt GPS-kerfi með tvöfaldri tíðni, ítarlegar heilsu- og hreyfimælingar og lengsta rafhlöðuending í Apple Watch til þessa gera úrið að öflugum æfingafélaga, hvort sem stefnan er tekin út að hlaupa eða í næsta ævintýri. Úrið er með fallega titanumgjörð og kemur í stærð 49mm.
Mögulega þægilegustu Airpods frá upphafi. Enn betri hljómgæði, minna hulstur sem nú er hlaðið með USB-C eins og iPhone símar. Styður einnig við Find my þjónustu Apple þannig að ef maður týnir hleðsluhulstrinu er hægt að láta það gefa frá sér hljóð.
iPhone 17 – Ný kynslóð af hraða, betri myndavél og enn meiri ending
Aflmeiri sími, stórkostleg myndavél og enn bjartari skjár í einstakri hönnun. Það er iPhone 17. 6,3” OLED-skjár með allt að 120 Hz endurnýjunartíðni með ProMotion-tækni.