Snjalldyrabjalla G4

Aqara 73027
IPX3.
Hægt að beintengja við rafmagn eða láta ganga á rafhlöðum.
Rafhlöður duga í allt að 4 mánuði á sparnaðarstillingu.
Tvíhliða samtöl, getur talað í síma og það berst í dyrabjölluna.
7 daga frí skýgeymsla, 6 sekúndna upptökur í senn.
Hægt að hafa 512GB SD kort fyrir 24/7 upptökur.
Gervigreind þekkir hver er við dyrnar.
162 gráður, HD upplausn, nætursjón.

19.990 kr

eða 7.147 kr./mán í 3 mánuði og engin útborgun*
Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista

Fáðu að vita hver er við hurðina

Innbyggð gervigreind leyfir þér að “merkja” andlit á þeim sem koma oft í heimsókn og þeim sem búa á staðnum. Það minnkar líkur á fölskum tilkynningum og gerir þér kleift að setja upp sjálfvirkar aðgerðir, jafnvel þó dyrabjallan sé aftengd við netið.

Samhæfanlegt við fjölda forrita og aukið öryggi með HSV

Rafhlöðuknúin dyrabjalla dulkóðar allt áður en það er sent í geymslu til iCloud fyrir aukið öryggi. Fyrir þá sem nota Google eða Alexa styður dyrabjallan einnig staðbundið streymi á Nest eða Echo snjall skjái. Áætlað er að Matter stuðningur verði aðgengilegur með OTA uppfærslu.

Algjörlega frí skýjageymsla, enginn falinn kostnaður

G4 tekur upp myndbönd við hreyfingu. Myndböndin sem eru 6 sekúndur í senn vistast á skýið algjörlega að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að setja SD kort í móðurstöðina, allt að 512GB. Þá vistar dyrabjallan myndbönd allan sólarhringinn.

Vörn gegn heitu og köldu veðri

G4 dyrabjallan þolir að vera í heitu sem köldu veðri og er með skvettivörn gegn vatni. Það er því mælt með því að koma dyrabjöllunni fyrir á þann hátt að erfitt sé fyrir vatn að koma í hana.

Rafhlöðuknúin eða beintengd við rafmagn

Dyrabjallan gengur fyrir 6 rafhlöðum, sem dugar í allt að 4 mánuði á sparnaðarstillingu. Hinsvegar er hægt að beintengja dyrabjölluna við rafmagnið í húsinu og þá nýtast rafhlöðurnar sem varaafl ef ske kynni að rafmagnið í húsinu detti út.

Heyrist hátt og snjallt

Móðurstöðinni er komið fyrir innandyra. Hún er knúin áfram af rafmagni í gegnum USB-C snúru. Móðurstöðin getur spilað hljóð allt að 95dB þegar bjöllunni er dinglað.

Breyttu röddinni þinni

Þegar bjallan er notuð sem dyrasími þá er hægt að breyta röddinni sinni áður en hún heyrist frá bjöllunni. Breyttu röddinni í trúðarödd, gamlann karl eða vélmenni.

Mismunandi tilkynningar við mismunandi aðstæður

Hægt er að fá mismunandi tilkynningar eins og þegar andlit er greint, hangsað er fyrir framan hurðina án þess að dingla og þegar átt er við dyrabjölluna. Við þessar tilkynningar getur þú spilað háværa sírenu, eða fyrirfram upptekin skilaboð.

Merktu svæði sem á ekki að taka upp

Hægt er að stilla upp að 3 svæðum á sjónsviði dyrabjöllunnar svo að dyrabjallan sé ekki að taka upp nágrannana.

Síminn - Vefverslun Símans - Snjalldyrabjalla G4