Allt sem þú þarft fyrir háhraða 5G net í bústaðinn, hesthúsið eða til að tengja öryggiskerfi eða myndavélar en þá hentar sérstaklega vel að hafa utandyra búnað til að ná sem bestu sambandi þar sem engir veggir trufla. Pakkinn inniheldur 5G utandyra loftnet sem og innandyra router sem styður 4G og 5G til að dreifa netinu. Notaðu 5G Pakkann með farsímaáskriftinni þinni eða gagnakorti sem samnýtir gagnamagnið úr áskriftinni þinni.
Wifi tengipunktur fyrir farsímanet AX2 tengipunkturinn tengist við 5G útiloftnet og sér um það að dreifa netinu um allt rýmið. AX2 tengipunkturinn er með 5Ghz Wifi 6 stuðning svo hann er leiftursnöggur að koma háhraða neti í öll tækin þín. Þess að auki er möguleiki að tengja marga saman í gegnum Mesh tækni og nota sem dreifikerfi fyrir heimilið eða bústaðinn. Þú getur síðan tengst smáforriti sem hjálpar þér að finna bestu mögulegu staðsetninguna fyrir punktana. ath* AX2 virkar ekki einn og sér, heldur þarf 5G loftnet til þess að taka á móti netsambandinu
Þægilegur PoE Injector fyrir netbúnað sem þarfnast þess til þessa að fá straum. PoE Injectorinn nýtist fyrir allskyns netbúnað sem tekur við spennu gegnum netkapla. Millistykkið tengist í rafmagn og svo fer netkapall úr millistykkinu í endabúnaðinn.
Hafðu 4G hnetuna frá Huawei með þér í ferðalagið og passaðu að allir komist netið. 4G hnetan frá Huawei er lítill og öflugur búnaður sem býr til WiFi sem að allt að 32 manns geta tengst á sama tíma.
Vertu með netið á ferðinni! Taktu myndlykilinn með þér á ferðina! Huawei B535 4G styður bæði 2.4 GHz og 5.0 GHz tíðnisambönd, það er því leikur einn að tengja myndlykilinn frá Símanum við þráðlausa netið frá 4G Routernum. Horfðu áhyggjulaus á sjónvarpið í fríinu.
Loftnet er tilvalið fyrir sumarbústaði og afskekkt heimili sem ná ekki nægilega góðu sambandi. Loftnetið er fest upp á þak til að ná betra sambandi og tengt við 4G beini sem býr til þráðlaust net. Kapall og festingar fylgja með.
GSD-804 er átta porta switch fyrir heimilið eða skrifstofuna, hann ræður við allt milli 10 til 50 notendur á sama tíma og er tilvalin lausn í samræmi við orku-sparnaðar stefnu um allan heim.