Sögur frá Tulipop: Bækur

Tulipop

3.490 kr

Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista
Uppselt
Vefverslun
Ármúli
Smáralind
Akureyri

Sætaspætan

Sætaspætan segir söguna af því þegar Freddi og Gló finna sjaldgæfan furðufugl í Sveppamýrinni. Þá hefst spennandi atburðarás þar sem markmiðið er að hjálpa fuglinum til síns heima. Sagan var skrifuð af Signýju Kolbeinsdóttur, yfirhönnuði Tulipop og stofnanda, í samstarfi við breska handritshöfundinn Davey Moore og rithöfundinn Gunnar Helgason. Bókin er 32 blaðsíður, í harðri kápu og fallega myndskreytt af Signýju. Hún er fullkomin fyrir eldri leikskólakrakka og yngri skólakrakka (4 til 8 ára), en vonandi mun öll fjölskyldan hafa gaman af!

Leyniskógurinn

Þessi fallega myndskreytta bók ber nafnið Leyniskógurinn og er fyrsta bókin í bókaröðinni „Sögur frá Tulipop" og kom út í lok ársins 2019. Bókin segir söguna af því þegar sveppasystkinin Búi og Gló fara í leiðangur inn í Leyniskóg þar sem leynast dularfullar verur. Bókin er 32 blaðsíður, með vandaðri harðspjalda kápu og ríkulega myndskreytt. Heillandi og skemmtileg bók fyrir börn á öllum aldri byggð á ástsælu persónunum úr íslenska ævintýraheiminum Tulipop eftir Signýju Kolbeinsdóttur.

Síminn - Vefverslun Símans - Sögur frá Tulipop: Bækur