Samsung Galaxy S23+

Síminn sem er með þér út daginn og mögulega þann næst án þess að þurfa djús. Myndavélatækni sem aldrei hefur sést áður hjá Samsung í samvinnu við hraðasta örgjörva sem sést hefur í Samsung síma. Gríptu þér félaga sem þekkir þig eins og sjálfan sig.
229,990 kr
eða 20,592 kr./mán í 12 mánuði og engin útborgun*
Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista
Á lager
Akureyri
Uppselt
Vefverslun
Ármúli
Smáralind

Spjaldtölva í kaupbæti

Nú fylgir með Galaxy Tab A8 LTE spjaldtölva með öllum seldum tækjum til 24. desember. Smelltu hér að loknum kaupum og sæktu um kaupaukann.

S23+ bíður ekki eftir fullkomna augnablikinu

Samsung Galaxy S23+ gerir þér kleift að fanga augnablikin hvenær sem er, hvar sem er. Stærsta stökk Samsung í myndavélatækni til þessa, hvort sem það eru ljósmyndir eða myndbandsupptaka. Samsung hefur þróað í þennan síma lausn sem kallast Super Night sem tekur til í myndunum þínum til að skila þér skýrustu myndinni hvort sem það er í mykri eða glampandi sól.

Skjáglampi tilheyrir fortíðini

Þessi fallega hannaði sími skartar fallegum Infinity-O skjá sem er samansettur af dýnamískum AMOLED 2X skjá með Vision Booster og 120Hz endurnýjunartíðni. Öll þessi tækni vinnur saman í harmoníu til að skila þér bjartri og fallegri mynd á skjánum þínum sama hvernig birtan er. Eini glampin sem þú færð með þennan skjá er frá afbrýðissömum vegfarendum.

Kröftugur og endingargóður

Síminn er útbúinn 4700 mAh rafhlöðu sem vinnur samhliða gervigreindartækni Samsung til að aðlaga rafhlöðuna að þinni notkun. Rafhlaðan aðlagast að því hvenær og hvernig þú notar símann svo þú getir notað símann í allt að 24 klukkustundir eða jafnvel meira! Allt þetta er knúið áfram af Snapdragon 8 Gen 2 örgjörva, hraðasta örgjörva sem sést hefur í Samsung síma. Hvort sem þú ert að taka upp ferðalag, spila tölvuleik, rúlla niður samfélagsmiðla eða vinna þá sér örgjörvin um að skila þér sem bestri upplifun, alltaf.

Falleg og sterkbyggð hönnun

Samsung Galaxy S23+ er smíðaður með Gorrilla Glass Victus+ að framan og aftan. Gorrilla Glass Victus+ er eitt sterkasta gler sem völ er á í snjallsíma svo síminn þinn þolir betur högg og rispur. Rammi símans er eins og brynja en hann er smíðaður úr sterkasta áli sem sést hefur í Samsung síma hingað til. IP68 ryk- og rakavörnin gerir þér kleift að nota símann þinn hvenær sem er, hvort sem þú ert standandi úti í rigningunni eða þurfir að glósa eftir æfingu.

Almennt
Stærð
76.2 x 157.8 x 7.6 mm
Örgjörvi
Snapdragon 8 Gen 2
Þyngd
195g
Innbyggt minni
256GB / 512GB
Rafhlaða
Rýmd
4.700 mAh
Skjár
Tegund skjás
Dynamic AMOLED 2x 120Hz
Stærð skjás
6.6"
Upplausn
2340 x 1080
Myndavél
Myndavél
50MP f/1.8, 12MP f/2.2 og 10MP f/2.4
Auka myndavél
12MP f/2.2

Viðskiptavinir sem keyptu þessa vöru keyptu einnig

Samsung

Samsung Galaxy S23 Smart View hulstur

Einstaklega sniðugt hulstur frá Samsung sem ver símann þinn á alla kanta og sýnir þér klukkuna og tilkynningar samhliða.
8,990 kr

Samsung

Samsung Galaxy S23+/Ultra Leður hulstur

Klæddu nýja Samsung S23 símann þinn í það allra fínasta, hágæða leður hulstur frá Samsung. Hulstrið er hannað úr svörtu fallegu leðurefni sem fer þægilega í hendi.
9,990 kr 4,995 kr

    Samsung

    Samsung Galaxy S23+/Ultra Sílikon Grip hulstur

    Passaðu enn betur upp á nýja S23 símann þinn með sílikon hulstri frá Samsung. Hulstrið er með gripi á bakhliðinni til þess að þú náir sem besta gripinu á símanum þínum.
    5,990 kr frá 2,995 kr

      Samsung

      PanzerGlass fyrir Samsung

      Eitt sterkasta öryggisglerið í bransanum í dag fyrir nýja símann þinn. Glerið festist á skjáinn á símanum þínum með sílikon blöndu og ver símann þinn fyrir hnjaski. Glerið býr yfir þeim eiginleika að sótthreinsa sig sjálft. Glerinu fylgir allt sem þú þarft til þess að þrífa símann þinn og setja glerið á.
      frá 4,490 kr
        Síminn - Vefverslun Símans - Samsung Galaxy S23+