Galaxy S24 Ultra 512GB - Sérlitir
Framtíðin er núna, það er kominn nýr Samsung Galaxy S24 Ultra. Þetta er síminn fyrir þau sem vilja einungis það besta. Upphafið á nýjum tímum hefst með brautryðjandi notkun gervigreindar í myndvélinni og enn betri vélbúnaði sem gerir aðdrátt (e. zoom) enn betri og gæði betri en nokkru sinni fyrr. S24 Ultra er sannkallað hörkutól þar sem síminn er útbúinn Corning Gorilla Glass Armor+ gleri bæði að framan og aftan. Líkt og notendur eldri Ultra síma þekkja er S-Pen á sínum stað með alla sína frábæru eiginleika sem einfalda lífið. Bæði S-Pen og S24 Ultra eru með IP-68 ryk- og rakavörn sem gerir þér kleift að taka símann með þér í öll þín helstu ævintýri áhyggjulaust. Galaxy S24 Ultra er útbúinn gífurlega öflugum örgjörvum sem tryggja átakalausa vinnslu símans öllum stundum, hvort sem þú ert að hámhorfa Sjónvarp Símans eða spila uppáhalds leikinn þinn. Taktu skrefið inn í framtíðina með S24 Ultra, hún er komin.
Nýttu Notað
Komdu með gamla símann í verslun okkar og skiptu upp í nýjan Galaxy S24 Ultra
Við verðmetum gamla símann eftir aldri og ástandi og gefum þér inneign upp í nýjan.
Svo færð þú auka 40.000 kr. afslátt ef þú kaupir Galaxy S24 Ultra síma!
Gildir frá 1. júlí til og með 25. ágúst
eða 24.143 kr./mán í 12 mánuði og engin útborgun*
Vefverslun
Ármúli
Smáralind
Akureyri