Apple TV 4K 3rd Gen

Taktu sjónvarpsstundirnar á heimilinu í nýjar hæðir með glænýju Apple TV. Þessi frábæra græja er komin til þess að kitla öll skynfærin þín með litaleiðréttingu og Dolby Atmos stuðning.
29.990 kr
eða 5.601 kr./mán í 6 mánuði og engin útborgun*
Setja í körfu
Bæta við samanburðarlista
Á lager
Vefverslun
Ármúli
Smáralind
Akureyri

Kvikmyndaupplifun í stofunni heima

Nýjasta útgáfa Apple TV 4K er útbúin HDR10+ og Dolby Vision. Minnstu smáatriði skríða því út úr myrkustu og björtustu hornum efnisins. Ekki nóg með það þá er græjan útbúin Dolby Atmos 5.1 og 7.1 sem skilar þér hljóði úr öllum áttum á tækjum sem stuðning við Dolby Atmos. Einnig er hægt að para HomePod Mini hátalara við Apple TV sem gerir upplifunina enn betri.

Raddstýrt sjónvarp

Fjarstýringin á Apple TV er útbúin Siri takka sem gerir þér kleift að stýra sjónvarpinu þínu með röddinni. Þú einfaldlega ýtir á takkann og segir skipunina sem þú vilt að verði framkvæmd. Það ber þó að hafa í huga að Siri hefur ekki enn þá lært Íslensku.

Uppfærðu gæðin án þess að uppfæra sjónvarpið

Apple TV býr yfir þeim einstaka eiginleika að geta litaleiðrétt sig með aðstoð frá iPhone símanum þínum. Þú einfaldlega biður Apple TV um að litaleiðrétta sig og beinir síðan símanum að sjónvarpinu þínu. Apple TV sér um rest.

Brjálað stuð en samt rólegheit

Þessi frábæra græja kemur með eiginleika sem kallast Audio Share sem gerir þér kleift að tengja allt að tvö Airpods við Apple TV. Þú getur því horft á uppáhaldssjónvarpsþáttinn þinn með allt í botni á sama tíma og þú heldur ró og næði á heimilinu.

ath. einungis 128GB Apple TV kemur með ethernet tengi.

Viðskiptavinir sem keyptu þessa vöru keyptu einnig

Apple

iPhone 15 Clear Case

Þunnt, létt og þægilegt hulstur fyrir allar týpur úr iPhone 15 línunni frá Apple. Hulstrið er húðað með sérstökum efnum sem veita mjög góða rispuvörn og fyrirbyggja það að hulstrið gulni með tímanum. Þetta fallega hannað hulstur frá Apple kemur með MagSafe stuðning sem gerir þér kleyft að festa ýmiskonar aukahluti á hulstrið eða hlaða hann með MagSafe hleðslutæki.
8.990 kr

    Apple

    iPhone 15 Pro

    iPhone 15 Pro fær uppfærslu á örgjörva í A17 Pro sem brýtur blað í sögu snjallsíma með yfirburða frammistöðu. Ásamt því að myndavélin er mesta aðdráttarmöguleika sem sést hefur í iPhone síma hingað til sem og glænýjum aðgerðartakka á hliðini sem þú getur ráðið hvað gerir eftir því sem þér hentar best. Þessu er síðan pakkað inn í títaníum umgjörð sem eykur endingu þeirra og styrkleika ásamt því að þau verða léttari fyrir vikið, enda er títaníum léttmálmur
    209.990 kr frá 199.990 kr
    Síminn - Vefverslun Símans - Apple TV 4K 3rd Gen