- Um vöruna
- Eiginleikar
Vertu með símann á hendinni
Nýja Galaxy Watch6 Classic úrið gerir svo margt sem síminn þinn gerir nema á þægilegri máta, allt beint af úlnliðnum þínum. Hlustaðu á tónlist, borgaðu fyrir innkaupin eða farðu á æfingu með einu snilldar úri á hendinni þinni. Úrið er gert úr ryðfríu stáli með þynnra snúningshjóli en áður sem gerir það að verkum að það er þægilegra að fara í gegnum úrið en áður.
Sofðu betur með Watch6 Classic
Galaxy Watch6 mælir svefninn þinn til hjálpa þér að bæta hann en úrið mælir hversu mikið af svefninum þínum er léttsvefn, djúpsvefn eða REM svefn. Úrið vinnur síðan úr þessum gögnum og leggur til hvað þú getur gert til þess að ná betri svefni. Ekki nóg með það þá er nýr svefnþjálfi í Watch6 Classic sem virkar þannig að úrið fylgist með svefninum þínum 7 daga í röð sem skilar þér í kjölfarið mánaðarlöngu þjálfunaráætlun sem hjálpar þér að búa til betri svefnvana.
Farðu út í daginn með heiminn á hendi þér
Úrið endist þér auðveldlega allan daginn í venjulegri notkun svo þú getur treyst á það til að fylgja þér í gegnum allan daginn þar sem rafhlaðan er það snjöll að hún reynir að spara við öll tækifæri. Ekki nóg með það þá er úrið IP68 vatns- og rykvarið og mætir Bandarískum hernaðarstöðlum þegar kemur að hita, víbring og höggi.
Þín heilsa í fyrirrúmi
Innbyggða Samsung Health appið gerir þér kleift að fylgjast með hjartslættinum þínum, skrefum og súrefnismagninu í blóðinu þínu. Ef þú vilt nánari upplýsingar um hvernig líkamlegleg staða þín er getur úrið gefið þér upplýsingar um dreifingu á fitu, beinum og vöðvum í líkamanum þínum og mælt BMI stuðulinn þinn.