Mi Robot Vacuum Mop 2 Pro snjallryksugan sogar upp öll helstu óhreinindi sem finna má á gólfinu heima, hvort sem það eru mylsnur eða dýrahár. Ryksugan er útbúin sérstökum hliðarbursta sem gerir ryksugunni auðveldara fyrir að ná vel út í horn og í kringum erfiða hluti eins og borðfætur ásamt því að geta blautmoppað gólfin samhliða. Ryksugan notast við hljóðbylgjutækni til þess að ná upp erfiðum blettum.
Ryksuguna getur þú sent á ákveðna staði eða valið staði sem ryksugan á ekki að fara á. Komi til þess að ryksugan verði batteríslaus á sinni ferð um húsið leitar hún sjálfkrafa aftur í hleðslu og heldur síðan áfram að þrífa á sama stað.