Framúrskarandi hljóð, öflug hljóðeinangrun og einstök þægindi sem gera hverja hlustun að betri upplifun.
Endurbætt hönnun sameinar fágað útlit og einstök þægindi með mjúkri, stillanlegri höfuðspöng og sporöskjulaga eyrnaskálum sem falla vel að eyrunum. TrueSpatial™ tækni skilar framúrskarandi hljóðupplifun á meðan QuietControl™ hljóðeinangrun hjálpar þér að sökkva þér í tónlistina. Veldu á milli mismunandi hlustunarstillinga eftir aðstæðum, þar á meðal Quiet, Aware, Immersion og Cinema og njóttu jafnframt skýrra símtala með hávaðasíun. Rafhlaðan endist í allt að 24 klukkustundir, eða í allt að 18 klukkustundir með Immersive Audio virku og 15 mínútna hraðhleðsla veitir allt að 2,5 klukkustunda hlustun. USB-tenging býður upp á taplaust (e. lossless) hljóð og gerir þér jafnframt kleift að hlaða heyrnartólin á meðan þú hlustar. Notendavænir stjórnhnappar á eyrnaskálunum gera svo auðvelt að stjórna tónlist, hljóðstyrk, símtölum og hlustunarstillingum.
Kraftmikill hljómur og hámarksþægindi fyrir virkan lífsstíl.
Njóttu tónlistar og hreyfingar með þráðlausum heyrnartólum sem sameina kraftmikinn hljóm, þægindi og frelsi í daglegu lífi. Opin hönnun gerir þér kleift að hlusta á uppáhaldslögin þín án þess að missa tengslin við umhverfið, hvort sem þú ert á hlaupum, í ræktinni eða á ferðinni. Þægileg festing heldur heyrnartólunum örugglega á sínum stað, jafnvel þegar mikið er um að vera og gerir þau að frábærum félaga fyrir virkan lífsstíl. Vönduð hljóðtækni skilar skýrum og ríkulegum tónum sem gera hverja æfingu enn skemmtilegri. Létt og notendavæn hönnun gerir heyrnartólin þægileg í langvarandi notkun, á meðan einföld stjórnun auðveldar þér að skipta um lög og svara símtölum. Frábær blanda af hljómgæðum, þægindum og hreyfifrelsi fyrir alla sem vilja njóta tónlistarinnar hvert sem leiðin liggur.
Ultra Open Earbuds frá Bose eru hönnuð til að nota allan daginn, þú setur þessi heyrnartól á þig og þú vilt aldrei taka þau af þér. Þau koma með sveigjanlegum liðum og eru svo létt að þú gleymir að þú sért með þau á eyrunum. Ultra Open Earbuds frá Bose eru auk þess búin hinni mögnuðu Immersive tækni sem virkar á ALLA tónlist. En með henni verður tónlistin mikið raunverulegri en áður og hljómar eins og hljómsveitin standi fyrir framan þig að spila. Vandaðir hljóðnemar sem taka upp tært og gott talað mál í símtölum og myndfundum.
Njóttu tónlistarinnar á nýjan hátt með kraftmiklum hljómi og einstaklega þægilegri hönnun.
Njóttu einstakra hljómgæða og hámarksþæginda með glæsilegum þráðlausum heyrnartólum sem sameina nýstárlega hönnun og frábæra hljóðupplifun. Opin hönnun hleypir umhverfishljóðum að svo þú getur notið uppáhaldstónlistarinnar án þess að missa tengslin við það sem gerist í kringum þig. Létt og sveigjanleg festing utan um eyrað tryggir þægilega notkun allan daginn, hvort sem þú ert í vinnunni, á ferðinni eða við æfingar. Með Bose Immersive Audio færðu umlykjandi hljóm, djúpan bassa og einstaklega skýra tóna, á meðan Cinema Mode skapar kvikmyndalega hljóðupplifun. SpeechClarity tæknin tryggir skýr símtöl og rafhlaðan býður upp á allt að 9 klukkustunda hlustun, auk viðbótarhleðslu úr hulstrinu. Þráðlaus hleðsla, IPX4 vatnsvörn og einföld stjórnun gera heyrnartólin að frábærum félaga í daglegu lífi.
Mögulega þægilegustu Airpods frá upphafi. Enn betri hljómgæði, minna hulstur sem nú er hlaðið með USB-C eins og iPhone símar. Styður einnig við Find my þjónustu Apple þannig að ef maður týnir hleðsluhulstrinu er hægt að láta það gefa frá sér hljóð.
AirPods 5 bjóða upp á nýja hljóðhönnun og næstu kynslóð Adaptive EQ sem skilar betri og nákvæmari hljómi. Heyrnartólin eru með allt að 1,5 sinnum öflugri virkri hljóðeinangrun (ANC) en í fyrri kynslóð.
Hlustaðu á alla þína uppáhalds tónlist með Palo Alto þráðlausu heyrnatólunum frá Urbanista. Heyrnatólin eru IP54 ryk- og skvettuvarin, svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af svita í ræktinni, rigningu í göngunni eða ryki við kyrrsetu. Heyrnatólin koma í hleðsluboxi sem leyfir þér að ná allt að 45 klst rafhlöðuendingu í heild. Adaptive og Hybrid ANC hljóðeinangrun. Bluetooth 5.3
WH-CH720N þráðlausu heyrnartólin frá Sony eru noise cancel og lokuð heyrnartól sem ná allt að 35 klukkustunda rafhlöðuendingu, hágæða hljóðgæðum, kristaltærum símagæðum og úrvali eiginleika til að gera þau auðveldari í notkun. Með hraðhleðslu geturðu notið meiri tónlistar án þess að hafa áhyggjur af því að verða hleðslulaus.