Snjalltæki

Sía
Sía
Sía vörur
Loka
  • Hvítur
  • Svartur
  • Silfur
  • Grænn
  • Rauður
  • Blár
  • Rautt/Blátt/Gult/Grænt
  • Svart/Hvítt/Rautt/Blátt
  • Blátt
  • Gulur
  • Ljós viður
  • Dökkur viður
  • Svart
  • Hvítt
  • Gult
  • Grænt
  • Rautt
  • Svört
Raða vörum eftir

Aqara

Camera Hub G3 innimyndavél með innbyggðri stjórnstöð

Öryggismyndavél frá Aqara sem virkar líka sem brú fyrir Zigbee 3.0 skynjara og snjalltæki. Öryggismyndavélin nemur hreyfingar og getur sent þér tilkynningar í síma og/eða kveikt á sírenu. Myndavélin er með 110° sjónsvið og þá er líka hægt að stýra henni upp, niður, hægri og vinstri í appinu, svo að allir krókar og kimar sjást.

2K upplausn.
110° víðlinsa.
Zigbee 3.0 stjórnstöð fyrir allt að 128 skynjara og tæki.
Innbyggður hreyfiskynjari, hljóðnemi og hátalari.
Styður Apple HomeKit, Google Assistant og Amazon Alexa.
19.990 kr

    Aqara

    Hub M1S (Gen 2) stjórnstöð

    Stjórnstöð fyrir Aqara skynjara ásamt Zigbee 3.0 skynjurum
    Styður tengingu við allt að 128 tæki
    2W hátalari sem t.d. er hægt að nota sem vælu eða vekjaraklukku
    LED lýsing sem t.d. er hægt að nota sem næturljós
    9.990 kr

      Aqara

      Hub E1 stjórnstöð

      Snjallheimili í smærri búning

      Með hjálp Aqara Hub E1 stjórnstöðvarinnar getur þú tengt snjalltæki og skynjara frá Aqara og fengið þannig stjórn yfir snjallvæðingu heimilisins beint í snjallsíma eða spjaldtölvu. Stjórnstöðin notast við Zigbee 3.0 tengingu sem að tryggir hraðari samskipti milli tækjanna og minnkar orkunotkun.

      Auðveldara og öruggara hversdags líf

      E1 stjórnstöðin vegur einungis 58gr og er því hægt að koma henni fyrir nánast hvar sem er og flytja auðveldlega á milli staða. Auk þess að gefa þér kost á því að snjallvæða heimilið með því að til dæmis kveikja ljós þegar hreyfiskynjarinn nemur hreyfingu eða draga frá gardínunum á morgnana þá varpar stjórnstöðin WiFi neti áfram og bætir því nettenginguna þína að auki!

      Stílhreint og snjallt

      Aqara stjórnstöðin fer vel inn í skipulag heimilisins og tengist hratt og þægilega við það forrit sem þú vilt. Eina sem þarf er að tengja stjórnstöðina við netið heima hjá þér og stinga því í USB innstungu og þá er hægt að tengjast við Aqara Home, Apple HomeKit og Google Assistant svo fátt eitt sé nefnt.
      4.990 kr

        Garmin

        Púlsmælir HRM-Dual

        Garmin púlsmælir - nákvæmur hjartsláttarmælir

        Garmin púlsmælirinn skilar nákvæmum og áreiðanlegum hjartsláttargögnum sem hjálpa þér að hámarka árangur í æfingum. Hann hentar jafnt fyrir hlaup, hjólreiðar og aðrar þolæfingar og samstillist auðveldlega við samhæfð tæki og öpp. Fullkominn aukabúnaður fyrir þá sem vilja æfa markvisst og byggja á traustum gögnum.
        14.900 kr 11.920 kr

          Aqara

          P2 Fjölnotaskynjari

          Aqara P2 fjölnotaskynjari - Fylgstu með hurðum og gluggum og fáðu snjallar tilkynningar sem auka öryggi og gera heimilið sjálfvirkara.

          Aqara P2 Matter er nettur fjölnotaskynjari sem eykur öryggi og yfirsýn á heimilinu með því að nema og láta vita þegar að hurðir eða gluggar eru opnaðir.
          Hann sendir tilkynningar beint í snjallkerfið þitt og gerir þér kleift að búa til snjalla sjálfvirkni sem einfaldar daglegt líf og eykur hugarró.
          Aqara P2 byggir á Matter og Thread samskiptastöðlunum sem tryggir áreiðanlega og trygga tengingu við helstu snjallvistkerfi á borð við Apple HomeKit, Alexa og Google Home.

          Uppsetning er einföld og með tengingu við Aqara M3 brú færðu öfluga og samhæfða lausn fyrir snjallheimilið.
          4.990 kr

            Aqara

            S1 Plus skjábrú

            Aqara S1 Plus - Snjöll og öflug stjórnstöð sem sameinar snertiskjá og fulla stjórn á snjallheimilinu á einum stað.

            Aqara S1 Plus skjábrúin er öflug og notendavæn stjórnstöð til að stýra snjallheimilinu, hún sameinar 6,9" snertiskjá og miðlæga stjórnun í einu tæki.

            Þú getur stjórnað ljósum og hita, fylgst með streymi frá dyrabjöllum og myndavélum og fengið mynd beint á skjáinn þegar hringt er, auk þess að hafa fulla yfirsýn og stjórn í gegnum app.

            • Innbyggður 2 relay rofi og 6 þráðlausir rofar til að stýra ýmsum snjalltækjum.
            • ZigBee 3.0 stjórnstöð og Matter over bridge stuðningur til að tengja Aqara búnað við önnur vistkerfi á einfaldan hátt.
            • Hægt að streyma myndavélum í gegnum skjáinn, ef einhver hringir dyrabjöllu þá kemur streymi frá myndavél á skjá.
            • Sveigjanlegt stjórnborð, hægt er að stilla þemu, búa til allt að 10 stjórnborð fyrir stýringu á snjallbúnaði.
            • Hægt að fylgjast með orkunotkun tengdra tækja, hægt að sækja skýrslu um notkun heimilisins.
            • í boði. Skjárinn kveikir á sér þegar hann skynjar að einstaklingur nálgast, nær allt að 2.5m fjarlægð og mismunandi stillingar í boði.

            S1 Plus skjábrúin tengist í 55mm veggdósir.
            39.990 kr

              Aqara

              G100 2K öryggismyndavél

              Aqara G100 – Veðurþolin 2K öryggismyndavél fyrir innan- og utandyra notkun

              Aqara G100 er öflug og veðurþolin öryggismyndavél sem hentar jafnt inni sem úti. Hún skilar skýrri 2K mynd (2304 x 1296) og er með f/1.8 ljósopi sem tryggir góð myndgæði við mismunandi birtuskilyrði. Innbyggð IR nætursjón gerir þér kleift að fylgjast með allan sólarhringinn.
              Myndavélin styður upptöku beint á microSD kort og getur tekið upp allan sólarhringinn (24/7). Einnig er hægt að tengja hana við NAS geymslu eða nýta skýjalausn Aqara til að tryggja örugga vistun gagna.
              Aqara G100 styður hreyfiskynjun og manngreiningu, sem eykur öryggi og dregur úr óþarfa tilkynningum. Hún tengist helstu snjallvistkerfum á markaðnum, þar á meðal Apple HomeKit, Amazon Alexa og Google Home.

              Helstu eiginleikar

              2K upplausn (2304 x 1296) með skýrri og nákvæmri mynd.
              Hentar fyrir innan- og utandyra notkun, IP65 veðurvörn.
              Styður allt að 512GB microSD kort fyrir staðbundna upptöku.
              Hægt að snúa 360°.
              Wi-Fi 6 (2.4GHz) tenging.
              Styður hreyfiskynjun og manngreiningu.
              Rafmagn í gegnum USB.

              Aqara G100 er hagkvæm og öflug lausn fyrir þá sem vilja áreiðanlega öryggismyndavél með háum myndgæðum og fjölbreyttum tengimöguleikum.
              6.990 kr

              Aqara

              G2H öryggismyndavél/brú 1080p

              Aqara Camera Hub G2H Pro – Myndavél og snjallstýring í einu

              Aqara Camera Hub G2H Pro sameinar öryggismyndavél og Zigbee 3.0 stjórnstöð í einni öflugri lausn fyrir snjallheimilið. Hún veitir skýra 1080p mynd í gegnum 146° víðlinsu og býður upp á fjölbreytta eiginleika sem auka öryggi og þægindi á heimilinu.

              Myndavélin styður HomeKit Secure Video og tengist helstu snjallvistkerfum á markaðnum, þar á meðal Apple HomeKit, Amazon Alexa og Google Home, sem gerir hana að afar fjölhæfum kosti fyrir nútíma heimili.

              Helstu eiginleikar
              1080p upplausn og 146° víðlinsa – breitt sjónarhorn og skýr mynd.
              Innbyggð Zigbee 3.0 stjórnstöð – styður allt að 128 Zigbee tæki.
              MicroSD og NAS stuðningur – allt að 512GB microSD kort og tenging við NAS í gegnum Samba.
              Hreyfi- og hljóðskynjun – þú færð tilkynningar þegar hreyfing eða hljóð greinist.
              Samþætting við skynjara – fáðu tilkynningar t.d. þegar hurðir eða gluggar opnast.
              Friðhelgisstilling – hylur valin svæði svo þau séu ekki tekin upp.
              Rafmagn í gegnum USB (5V 1A) – einföld og þægileg uppsetning.

              Aqara Camera Hub G2H Pro er fullkomin lausn fyrir þá sem vilja auka öryggi, yfirsýn og sjálfvirkni á heimilinu – allt í einu snjöllu tæki.
              12.990 kr

                Aqara

                FP300 viðveru- hita og rakaskynjari

                Aqara FP300 – Nákvæmur viðveruskynjari með mmWave og PIR tækni

                Aqara FP300 er byltingarkenndur, rafhlöðuknúinn viðveruskynjari sem sameinar tvöfalda PIR- og mmWave skynjun fyrir afar nákvæma greiningu á hreyfingu og viðveru.

                Skynjarinn styður bæði Zigbee og Matter, sem gerir hann samhæfan helstu snjallvistkerfum á markaðnum, þar á meðal Apple HomeKit, Amazon Alexa og Google Home. Uppsetningin er einföld, sem gerir hann hentugan í fjölbreytt rými á heimilinu.

                Auk viðveruskynjunar er FP300 búinn innbyggðum ljós-, hita- og rakaskynjara sem gerir þér kleift að fylgjast með aðstæðum innandyra og búa til sjálfvirknireglur sem auka bæði þægindi og orkunýtingu.

                Helstu eiginleikar
                Tvöföld mmWave og PIR skynjun fyrir nákvæma og stöðuga greiningu.
                Innbyggður ljós-, hita- og rakaskynjari.
                Hámarks skynjunarfjarlægð allt að 6 metrar með 120° sjónsviði (FOV).
                Innbyggð rafhlaða (2x CR2450).
                Styður Matter, Apple HomeKit, Amazon Alexa og Google Home.

                FP300 þarf að tengjast Aqara brú/hub

                Aqara FP300 er öflug lausn fyrir þá sem vilja nákvæma viðverugreiningu og betri stjórn á lýsingu, hitastigi og sjálfvirkni á snjallheimilinu.
                7.990 kr
                  Snjalltæki – Vefverslun Símans