Hafðu 5G hnetuna með þér í ferðalagið og passaðu að allir komist netið. 5G hnetan er lítill og öflugur búnaður sem býr til WiFi sem að allt að 32 manns geta tengst á sama tíma. Er einnig hleðslubanki með 7.000 mAh rafhlöðu
Prentaðu uppáhalds augnablikin þín hratt, auðveldlega og þráðlaust.
Fyrirferðarlítill og þægilegur prentari sem gerir þér kleift að prenta myndir, límmiða, segla og fleira á einfaldan hátt hvar sem er. Bluetooth 5.2 tenging tryggir hraða og stöðuga tengingu við snjallsímann þinn á meðan Labelnize appið fyrir iOS og Android gerir ferlið einstaklega einfalt og notendavænt.
Prentarinn skilar skörpum og góðum prentgæðum með 600 dpi upplausn og styður fjölbreyttar pappírsgerðir, þar á meðal ljósmyndapappír, límmiðapappír, segulpappír, fatapappír og tattoo pappír. Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða gerir þér kleift að prenta allt að 40 myndir á einni hleðslu, sem gerir prentarann fullkominn til að taka með sér hvert sem er.
Fylgir með í kassanum:
Denver 6010 prentari
USB-A í USB-C hleðslusnúra
1x prenthylki, 20stk pappír (4x venjulegur pappír, 4x límmiðapappír, 4x fatapappír, 4x segulpappír og 4x tattoo pappír)
Samsung Galaxy Tab A9+ býr yfir öllum þeim eiginleikum sem þú þarft í þitt daglega líf. Hvort sem það er í vinnu, starfi eða einfaldlega til að leika þér. Spjaldtölvan er búin fallegum og björtum skjá, stórri rafhlöðu, öflugum örgjörva og Samsung Kids.
Láttu pirrandi kláða ekki eyðileggja sumarið! Með Heat it classic getur þú bjargað útilegunni, fjallgöngunni eða sólarlandaferðinni frá óþægindum eftir flugnabit frá lúsmýi, moskítóflugum og öðrum skordýrum.
Þú einfaldlega smellir Heat it í USB-C tengið á símanum þínum, opnar appið og hitar flugnabitið. Tækið hitar flugnabitið með 51° gráðu hita í nokkrar sekúndur sem er vísindalega sannað að virkar til að minnka óþægindi.
Í appinu er hægt að stilla meðferðartíma þannig að hann sé fjórar, sjö eða níu sekúndur og hitann má stilla frá 45,5° upp í 51° allt eftir því hverju hver og einn óskar eftir. Appið virkar með Android og iPhone símum sem hafa USB-C hleðslutengi. Tækið er eingöngu hannað til að tengjast við snjallsíma, ekki við hleðslutæki eða önnur tæki.
Mælt er með að nota tækið um leið og þú tekur eftir flugnabiti, þannig má draga úr eða koma í veg fyrir einkenni.
Snjöll gleraugu með innbyggðum hátölurum og open-ear hljóðlausn sem sameina þægindi, tengingu og nútímalega upplifun í daglegri notkun.
Snjöll og létt gleraugu með innbyggðum hátölurum sem gera þér kleift að njóta tónlistar og símtala án þess að loka þig af frá umhverfinu. Þau bjóða upp á þægilega open-ear upplifun, stöðuga þráðlausa tengingu og einfaldar snertistýringar fyrir tónlist, símtöl og hljóðstyrk, ásamt stuðningi við raddstýringu eins og Siri og Google.
Hönnuð til daglegrar notkunar með léttum og endingargóðum ramma, vatnsheldni og linsum sem draga úr bláu ljósi. Rafhlaðan endist vel yfir daginn og hleðst hratt, sem gerir þau að praktískum og nútímalegum valkosti fyrir virkan lífsstíl.
OpenFit 2+ byggir á nýjustu Shokz DualBoost™ tækninni í samvinnu við Dolby Audio, skilar sér í ríkum og djúpum tónum með opnu eyrna upplifuninni.
Takkar á tólunum gera þér auðvelt fyrir að stjórna tónlist, eða símtölum beint á eyranu.
Soundboks Mix - Hátalari sem lyftir stemningunni upp á næsta stig, hvar sem partýið fer fram.
Soundboks Mix er hátalari sem sameinar gríðarlegt afl og flotta hönnun í einni lausn, en er samt það nettur að auðvelt er að taka hann með sér. Hann skilar kraftmiklu og skýru hljóði sem fyllir bæði inni- og útirými, þannig að tónlistin lifnar við hvort sem um er að ræða heimapartý, útihátíð eða samkomu með vinum.
Hann er hannaður til að skila ótrúlegum hljómgæðum og allt að 121 dB hámarksstyrk án bjögunar, sem tryggir öfluga og jafna hljóðupplifun.
Hleðslutæki fylgir ekki með (USB-C) Kaupauki!
Þegar þú kaupir Soundboks Mix færðu Lightboks með í kaupauka.
Setja þarf Lightboks með í pöntunina til þess að fá kaupaukann.
Gildir til 31.júlí 2026 eða á meðan birgðir endast.
Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.
Vekjaraklukka með FM útvarpi og þráðlausri hleðslu
Þetta tæki sameinar tónlist, vekjaraklukku og þráðlausa hleðslu í einni lausn. Njóttu uppáhalds FM stöðvanna eða streymdu tónlist þráðlaust með Bluetooth 5.3, tækið er með tvo 5W hátalara sem skila skýru og kraftmiklu hljóði.
Innbyggð 15W þráðlaus hleðsla gerir þér kleift að hlaða símann á einfaldan hátt á meðan LED skjárinn sýnir tímann skýrt allan sólarhringinn. Tækið býður einnig upp á náttúruleg vekjarahljóð, stillanlega lýsingu og stuðning við microSD kort allt að 64GB svo þú getir haft uppáhaldstónlistina alltaf við höndina.