Hönnun sem skarar fram úr, hámarks afköst, myndavélakerfi sem fanga hvert augnablik niður í minnstu smáatriði og öflugt gervigreind með Galaxy AI. S25 Edge er aðeins 5,9 mm á þykkt og 163 g á þyngd, einn léttasti og þynnsti síminn á markaðnum í dag.
Galaxy S25 er besti félaginn þar sem gervigreind ásamt fyrsta flokks vélbúnaði gerir snjallsímann þinn snjallari en þig óraði fyrir. Galaxy S25 er með 6,2“ dýnamískan AMOLED skjá sem skilar 2340x1080 upplausn og allt upp í 120Hz endurnýjunartíðni og birtu allt upp í 2600 nits.
Samsung Galaxy S25+ er eins og Galaxy S25, nema skjárinn er stærri og upplausnin hærri. S25+ er með 6,7“ QHD dýnamískan AMOLED 2x skjá sem skilar 3120x1440 upplausn með allt að 120Hz endurnýjunartíðni og birtu allt upp í 2600 nits.
Stór, betri, bestur eru réttu orðin fyrir Galaxy 25 Ultra. Allt að besta sem Samsung hefur upp á að bjóða í einu tæki. Risastór 6,9“ dýnamískur AMOLED 2X QHD+ skjár sem skilar 3120x1440 upplausn með allt að 120Hz endurnýjunartíðni og birtu allt upp í 2600 nits.
Allar myndavélarnar Aðalvélin á S25 Ultra er ekkert slor, 200 MP. Víðlinsan er 50 MP og svo eru tvær aðdráttarlinsur, önnur með tíföldum aðdrætti ásamt 100x Space aðdrætti en hin með þreföldum aðdrætti. Að framan er svo 12 MP myndavél sem er frábær fyrir sjálfur og fjarfundi. Gervigreind hjálpar þér svo að ná enn meira úr þessum frábæru myndavélum t.d. með því að tryggja að augu allra séu opin í hópmyndatökum, fjarlægja eitthvað sem á ekki að vera á mynd eða eyða út hljóði af myndbandi sem þú vilt ekki hafa. Myndavélar Samsung hafa aldrei verið betri að taka myndir og myndbönd að næturlagi ásamt því að hægt er að litaleiðrétta myndir eins og atvinnumaður.
Allt þetta afl, aðgengilegt strax! Snapdragon 8 Elite-örgjörvinn er sá öflugasti sem hefur verið í Samsung Galaxy-síma. Hann er sérhannaður til að gera gervigreind kleift að vinna á ógnarhraða en líka til að gefa þér afl í allt annað hvort sem það er ritvinnsla, leikir eða sjónvarpsáhorf. Skjárinn nýtir einnig gervigreind en þökk sé skjánum sem Samsung hefur hannað aðlagar hann sig að því sem þú ert að gera eða horfa á hverju sinni fyrir allra bestu upplifun. Gervigreindin er svo bakvið tjöldin að spara rafhlöðuna þannig að hún endist sem best og Galaxy S25 sé alltaf til taks þegar þú þarft á að halda. Gervigreindin gerir svo margt, margt fleira til að spara þér sporin.
Galaxy S25 er besti félaginn þar sem gervigreind ásamt fyrsta flokks vélbúnaði gerir snjallsímann þinn snjallari en þig óraði fyrir. Galaxy S25 er með 6,2“ dýnamískan AMOLED skjá sem skilar 2340x1080 upplausn og allt upp í 120Hz endurnýjunartíðni og birtu allt upp í 2600 nits.
Stór, betri, bestur eru réttu orðin fyrir Galaxy 25 Ultra. Allt að besta sem Samsung hefur upp á að bjóða í einu tæki. Risastór 6,9“ dýnamískur AMOLED 2X QHD+ skjár sem skilar 3120x1440 upplausn með allt að 120Hz endurnýjunartíðni og birtu allt upp í 2600 nits.
Samsung Galaxy S25+ er eins og Galaxy S25, nema skjárinn er stærri og upplausnin hærri. S25+ er með 6,7“ QHD dýnamískan AMOLED 2x skjá sem skilar 3120x1440 upplausn með allt að 120Hz endurnýjunartíðni og birtu allt upp í 2600 nits.
Nýjasta uppfærslan í FE línu Samsung er mætt. Galaxy S24 FE er búinn hinum frábæra 6,7” AMOLED 2X, HDR10+, 120Hz skjá. 120Hz skjárinn er þægilegri fyrir augað að nema hreyfingarnar á skjánum hvort sem það er í leikjaspilun eða almennri notkun. Þrjár almennar myndavélar eru aftan á símanum, 12MP Ultra víðlinsa, 50MP Víðsjárlinsa og 8MP Aðdráttarlinsa hjálpa þér að fanga hvert augnablik án vandamála og sjálfumyndavélin er 10MP svo ekkert mál er að taka frábærar sjálfur á þessu tæki. S24 FE er uppfyllir IP68 staðalinn svo engar áhyggjur fylgja því að síminn sé kring um skvettur eða ryk.
Mögulega besta samloka í heimi en Flip6 er stór sími í litlum umbúðum. Lokaður er hann lítið sem ekkert og 3.4“ skjárinn að framan heldur þér upplýstum en opinn er heill 6.7“ skjár sem gerir þér kleift að gera hvað sem er. Snapdragon 8 Gen.3 örgjörvi, 50 MegaPixla myndavél ásamt 4000 mAh rafhlöðu og ofurkröftum gervigreindar sjá til þess að þú fórnar engu þó þú sért með síma sem er ekki neitt neitt í vasa eða veski.