Ipad Air – Öflugri en nokkru sinni fyrr, með M4-krafti og glæsilegri skjástærð
iPad Air er létt og fjölhæf spjaldtölva sem hentar vel í skapandi verkefni, nám og vinnu. M4-kubburinn sér um hraðann svo allt flæðir betur og Apple Intelligence gerir allt einfaldara – hvort sem þú ert að klippa myndbönd, teikna, spila eða vinna í mörgum öppum í einu.
Ipad Air – Öflugri en nokkru sinni fyrr, með M4-krafti og glæsilegri skjástærð
iPad Air er létt og fjölhæf spjaldtölva sem hentar vel í skapandi verkefni, nám og vinnu. M4-kubburinn sér um hraðann svo allt flæðir betur og Apple Intelligence gerir allt einfaldara – hvort sem þú ert að klippa myndbönd, teikna, spila eða vinna í mörgum öppum í einu.
Einstök litadýrð með MacBook Neo. Fjórir glæsilegir litir. Ein endingargóð hönnun.
MacBook Neo er létt og sterk tölva sem fylgir þér í skóla, vinnu og allt þar á milli. Þú færð allt að 16 klst. rafhlöðuendingu, bjartan 13" Liquid Retina skjá og öfluga A18 Pro-flögu sem heldur öllu gangandi – hvort sem þú ert að læra, vinna skapa eða slaka á.
256GB er með Magic lyklaborði 512GB er með Magic lyklaborði með Touch ID
Airpods Max 2 - Ný kynslóð af frábærum heyrnartólum.
Ný kynslóð af Airpods Max sem skilar einstaklega nákvæmu og kraftmiklu hljóði þar sem hver nóta fær að njóta sín, með dýpri bassa, náttúrulegri raddblöndu og breiðara hljóðsviði en áður. Snjallar aðgerðir eins og Adaptive Audio laga sjálfkrafa hljóð og noise cancellation að umhverfinu, á meðan Transparency og Conversation Awareness gera þér kleift að eiga eðlileg samskipti án þess að taka heyrnartólin af þér. Með Live Translation verður auðveldara en nokkru sinni að tala við fólk á mismunandi tungumálum og persónuleg hljóðstilling tryggir fullkomna upplifun hvar sem þú ert, hvort sem þú ert að hlusta, horfa eða spila.
iPhone 18 Pro er endurhannaður frá grunni til að skila afköstum í algjörum sérflokki.
iPhone 18 Pro sameinar fullkomnasta myndavélakerfi Apple til þessa, öfluga A20 Pro-flögu og framúrskarandi rafhlöðuendingu. Ný kynslóð gufukælingar tryggir stöðug afköst þegar mikið reynir á og iOS 27 færir þér nýja og snjallari möguleika.
Fyrsta sending væntanleg til Símans 18. september. Skráðu þig á póstlista og við heyrum í þér um leið og síminn lendir hjá okkur!
iPhone 18 Pro Max tekur Pro-upplifunina skrefinu lengra með fullkomnasta myndavélakerfi Apple til þessa og bestu rafhlöðuendingu í iPhone frá upphafi.
Fullkomnasta myndavélin í iPhone, öflug A20 Pro-flaga, ný 48 MP Fusion-aðalmyndavél með stillanlegu ljósopi, háþróuð gufukæling og allt að 45 klukkustunda myndspilun gera Pro Max að öflugum iPhone fyrir þau sem vilja meira.
Fyrsta sending væntanleg til Símans 18. september. Skráðu þig á póstlista og við heyrum í þér um leið og síminn lendir hjá okkur!
AirPods 5 bjóða upp á nýja hljóðhönnun og næstu kynslóð Adaptive EQ sem skilar betri og nákvæmari hljómi. Heyrnartólin eru með allt að 1,5 sinnum öflugri virkri hljóðeinangrun (ANC) en í fyrri kynslóð.
Fyrsta sending væntanleg til Símans 18. september.
Öflug og fyrirferðarlítil hraðhleðsla með allt að 60W afli fyrir fjölbreytt úrval USB-C tækja.
Öflugur og fyrirferðarlítill hleðslukubbur sem aðlagar afköstin sjálfkrafa og skilar allt að 60W hámarksafli. Dynamic Power tæknin sameinar hraðvirka hleðslu og netta hönnun sem gerir hleðslutækið tilvalið heima, á skrifstofunni eða á ferðinni. Fyrir hraðhleðslu má nota þennan Dynamic Power hleðslukubb með iPhone 17, iPhone 17 Pro og iPhone 17 Pro Max (allt að 50% hleðsla á aðeins 20 mínútum) eða iPhone Air (allt að 50% hleðsla á 30 mínútum). Einnig má nota hann með 11" iPad Pro (allt að 50% hleðsla á 30 mínútum) eða 13" iPad Pro (allt að 50% hleðsla á 35 mínútum). Hleðslukubburinn er samhæfur við USB-C tæki og hentar fjölbreyttu úrvali Apple tækja sem þurfa allt að 60W afl, með viðeigandi snúru. Hleðslusnúra er seld sér.
Þetta ofna hulstur með MagSafe frá Apple gefur iPhone 18 Pro/Pro Max persónulegan stíl og góða vörn.
Hulstrið er úr sérhönnuðu ofnu efni og er úr 100% endurunnu pólýester. Marglitu garni er ofið saman á Jacquard-vefstól í áþreifanlega áferð með djúpum og ríkulegum lit. Hliðar hulstursins eru með lagi af létt áferðarmiklu TPU fyrir betra grip. Fágaðir takkar úr anodíseruðu áli gefa nákvæma áþreifanlega svörun.
Hulstrið er með tveimur festipunktum svo hægt er að festa CrossBody-ólina tryggilega og nota iPhone án þess að halda á honum.
Með innbyggðum seglum sem staðsetja sig fullkomlega á iPhone 18 Pro/Pro Max býður þetta hulstur upp á auðveldari og hraðari þráðlausa hleðslu. Í hvert einasta skipti. Þegar komið er að hleðslu læturðu hulstrið einfaldlega vera á iPhone og smellir MagSafe-hleðslutækinu á eða setur það á Qi2- eða Qi-hleðslutæki.
Eins og öll önnur hulstur hönnuð af Apple hefur það farið í gegnum þúsundir klukkustunda af prófunum á hönnunar- og framleiðslustigi. Þannig að auk þess að vera flott á að líta verndar það iPhone fyrir rispum og höggum.