Sía
Sía
Sía vörur
Loka
Min: 2.999 kr Max: 379.990 kr
ISK2999 ISK379990
Raða vörum eftir

Samsung

Galaxy A27

Öflugur og snjall 5G sími sem sameinar frábæran skjá, skarpa myndavél og lipra upplifun fyrir alla daga.

Skýr og lipur skjár tryggir frábæra upplifun, hvort sem þú ert að vafra, horfa á myndbönd eða sinna daglegum verkefnum. Myndavélin fangar falleg augnablik við fjölbreyttar aðstæður og snjallir gervigreindareiginleikar auðvelda þér að leita að upplýsingum, vinna með myndir og halda utan um dagleg verkefni.
Með lipurri frammistöðu, góðri rafhlöðuendingu og öflugum öryggiseiginleikum færðu áreiðanlegan síma sem hentar vel fyrir fjölbreytta notkun og annasaman hversdag.

Skjár: 6,7" FHD+ Infinity-O skjár með 120Hz endurnýjunartíðni
Myndavél: 50MP aðalmyndavél með OIS og Nightography
Örgjörvi: Snapdragon 6 Gen 3
Minni og geymsla: 8GB vinnsluminni og 256GB geymsla
Rafhlaða: 5.000mAh með 25W hraðhleðslu
Vörn: Gorilla Glass og IP64 vottun
Öryggi: Samsung Knox Vault
Stýrikerfisviðmót: One UI 8.5

Galaxy A27 256GB kemur eingöngu í svörtum lit.



Vöruupplýsingablað
frá 57.990 kr

Samsung

Galaxy S26 Ultra

Samsung Galaxy S26 Ultra – fullkomið flaggskip; óviðjafnanleg myndavél, hámarks afköst og Galaxy AI sem ýtir mörkunum lengra en nokkru sinni fyrr.

Galaxy S26 Ultra er einn sá allra flottasti úr smiðju Samsung. Sannkallaður gervigreindarsími með enn betri ljósmyndun og myndbandsupptöku. Fjórar mismunandi stillingar á skjásíu gera þér kleift að vera í símanum án þess að nokkur gægist á skjáinn. Síminn státar fallegri og vel heppnaðri hönnun og tækni sem er engri lík.

Þegar þú kaupir Samsung Galaxy S26 Ultra þá geturðu valið á milli þriggja veglegra kaupauka.

Valið stendur á milli.
Buds4 Pro Black (hægt að afhenda strax)
Watch9 40mm BT Graphite (fyrsta afhending 19.okt)
Tab A11+ Wifi 11" 128GB Gray (fyrsta afhending 23.nóv)

Sækja þarf um kaupaukann á samsungmobile.is .
Tilboðið gildir frá 1. október til 1. nóvember 2026.

Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.

Vöruupplýsingablað
frá 254.990 kr
  • +

Samsung

Galaxy Z Flip7

Galaxy Flip7 – Samfellanleg hönnun, kraftmikil frammistaða og stíll í vasanum.

Samsung Galaxy Z Flip 7 er smár en með einni hreyfingu eru þér allir vegir færir. Flip hefur aldrei verið þynnri né léttari, vegur aðeins 188 grömm. Sérstyrktur álrammi og Gorilla Glass Victus 2 passar svo upp á að Flip 7 sé varinn fyrir áreiti dagsins.


Vöruupplýsingablað
frá 209.990 kr

Samsung

Galaxy Z Fold7

Galaxy Fold7 – Stærri skjár og ný vídd af snjallsíma.

Hér fer saman ótrúleg hönnun ásamt kraftmikilli tækni sem sameinast í að leyfa þér að nýta tæknina betur en nokkru sinni fyrr. Sé Fold 7 brotinn saman er hann frábær snjallsími en opinn er hann eitthvað allt, allt annað.



Vöruupplýsingablað
frá 349.990 kr

Samsung

Galaxy A17

Galaxy A17 – Sterk frammistaða og góð myndavél.

Samsung Galaxy A17 er frábær og áreiðanlegur snjallsími sem hentar vel fyrir daglega notkun. Hann býður upp á stóran og skýran skjá sem gerir það auðvelt að vafra á netinu, horfa á myndbönd og vera á samfélagsmiðlum. Með góðri myndavél geturðu fangað augnablikin með skýrum og fallegum myndum og öflug rafhlaða tryggir að síminn endist vel yfir daginn.
Galaxy A17 er snjallt val fyrir þá sem vilja góða frammistöðu og einfalt notendaviðmót á hagstæðu verði.

Vöruupplýsingablað
39.990 kr

    Samsung

    Galaxy A18

    Glæsilegur og fjölhæfur snjallsími með skýrum AMOLED skjá, öflugri myndavél og rafhlöðu sem heldur í við daginn..

    Stílhreinn og öflugur snjallsími sem sameinar glæsilega hönnun, skýran 6,7 tommu Super AMOLED skjá og þægilega notkun í dagsins önn.
    Þrefalt myndavélakerfi með 50 MP aðalmyndavél gerir þér kleift að fanga falleg augnablik í skýrum smáatriðum á meðan gleiðhornsmyndavélin kemur sér vel fyrir landslagsmyndir og hópmyndir.
    Öflug 5.000 mAh rafhlaða heldur í við annasaman daginn og 128 GB geymslupláss býður upp á gott rými fyrir myndir, myndbönd og öpp. Með Circle to Search frá Google er jafnframt auðvelt að leita að því sem vekur athygli þína beint á skjánum.
    Þunn og fáguð hönnun fer saman við trausta endingu með Gorilla Glass 3 skjávörn og IP64 vörn gegn ryki og vatnsslettum. Samsung Knox Vault hjálpar til við að vernda persónulegar upplýsingar og með allt að sex kynslóðum stýrikerfisuppfærslna og sex ára öryggisuppfærslum geturðu notið símans með auknu öryggi til lengri tíma. Frábær kostur fyrir þá sem vilja fallegan, notendavænan og fjölhæfan snjallsíma sem hentar vel í daglegu lífi.

    Vöruupplýsingablað
    49.990 kr

    Samsung

    Galaxy A37

    Stílhreinn og öflugur 5G snjallsími sem sameinar lipra frammistöðu, skýran skjá og snjalla eiginleika fyrir nútímalegt líf.

    Fáðu meira út úr snjallsímanotkuninni með tæki sem leggur áherslu á jafnvægi milli afkasta, hönnunar og þæginda. Öflugur skjár gerir efnið skýrara og skemmtilegra á meðan að góð rafhlaða og hröð 5G tenging halda þér gangandi án truflana. Háþróuð myndavél og snjallar lausnir gera þér kleift að fanga og deila augnablikum á einfaldan og stílhreinan hátt.



    Vöruupplýsingablað
    frá 69.990 kr

    Samsung

    Galaxy A57

    Öflugur 5G snjallsími með skýrum skjá, langri rafhlöðuendingu og frábærri frammistöðu fyrir daglega notkun.

    Fáðu góða upplifun með snjallsíma sem sameinar hraða, glæsilega hönnun og snjalla eiginleika í daglegri notkun. Skýr skjár, öflug rafhlaða og 5G tenging halda þér tengdum allan daginn á meðan fjölhæf myndavél fangar augnablikin með nákvæmni og skýrleika, fullkominn félagi fyrir vinnu, afþreyingu og allt þar á milli.



    Vöruupplýsingablað
    frá 84.990 kr

    Samsung

    Galaxy S25 FE 128GB Svartur

    Galaxy S25 FE, Flaggskips eiginleikar á hagstæðu verði!

    S25 FE Státar af stílhreinni hönnun, með 6,7" Dynamic AMOLED 2x skjá sem hefur 120 Hz endurnýjunartíðni, öflugum örgjörva, 4900 mAh rafhlöðu og þremur myndavélum.

    Þegar þú kaupir Samsung Galaxy S25 FE færðu Samsung Galaxy Buds3 Silver með í kaupauka. Sækja þarf um kaupaukann á samsungmobile.is .
    Tilboðið gildir frá 25. september til 23. október 2026.

    Vinsamlegast athugaðu að ef tæki er skilað þarf einnig að skila kaupaukanum. Allur búnaður þarf að vera í því ástandi sem skilareglur kveða á um.

    Vöruupplýsingablað
    134.990 kr
      Farsímar – Vefverslun Símans