Glæsibragur Samsung Galaxy A25 5G er sannarlega mikill. Þetta tæki er með víðáttumikinn 6,5" Super AMOLED skjá og sýnir líflega liti, flókin smáatriði og nær hámarks birtu upp á 1.000 nit. Þess að auki með Vision Booster tækninni tryggir síminn einstakt skyggni utandyra. Þar að auki sér Eye Comfort Shield um augun allan sólarhringinn með því að draga á áhrifaríkan hátt úr skaðlegu bláu ljósi, sem veitir vernd fyrir sjónina bæði á daginn og næturna.
XCover 7 er harðgerður sími sérhannaður fyrir erfiðar aðstæður. Síminn er höggvarinn, IP68 ryk- og vatnsþéttur og með öflugri útskiptanlegri rafhlöðu sem endist frá morgni til kvölds. Upplagður valkostur fyrir þau sem nota símann í vinnunni!
Frábær snjallsími hlaðinn búnaði og flottum eiginleikum á frábæru verði. Síminn er búinn stórum og fallegum skjá og öflugri 50MP myndavél ásamt því að keyra á stórri 5.000 mAh rafhlöðu.
Einstaklega vel búinn snjallsími á frábæru verði. Samsung Galaxy A15 er búinn einstaklega fallegum og björtum skjá, fallegri hönnun og öflugum myndavélum. Sannkallað hetjutæki á góðu verði!
Nothing hafa alltaf farið sínar eigin leiðir og Phone (2a) er engin undantekning! Með sérsniðnu stýrikerfi, Glyph ljósatækni, 6,7" AMOLED skjá, tveimur 50 MP myndavélum og allt að tveggja daga rafhlöðuendingu býður Phone (2a) risunum birginn með stæl.
Harðgerðari síma með jafn mikið af eiginleikum er erfitt að finna þó víða væri leitað. Síminn er útbúinn frábærri hitamyndavél og 108MP hefðbundinni myndavél samhliða gríðarlega fallegum 120Hz skjá sem birtir þér allar þínar minningar í fullum gæðum.