MOYE Joy Kids Smart Watch 4g er hannað með þarfir barna og foreldra í huga, úrið sameinar háþróaða tækni og notendavæna hönnun. Úrið styður 4G LTE tengingu sem gerir mögulegt að hringja, senda raddskilaboð og framkvæma myndsímtöl án síma. Með innbyggðu GPS, WiFi og LBS staðsetningarkerfum geta foreldrar fylgst nákvæmlega með staðsetningu barnsins í rauntíma og sett örugg svæði með tilkynningum.
Helstu eiginleikar: 4G LTE: Styður nano SIM kort, hentar fyrir flest íslensk farsímakerfi GPS, WiFi og LBS: Nákvæm staðsetning og öruggar svæðisskilgreiningar 1.4" snertiskjár: Litaskjár með einföldu viðmóti fyrir börn Myndavél: Tekur myndir og myndsímtöl Vatnsvarið: IPX7 vottun – þolir rigningu og slettur Öryggishnappur: Neyðarhnappur (SOS) sem sendir tilkynningu strax til foreldra Langur rafhlöðuending: Rafhlaða dugir allt að 6 daga í bið.
Fullkomið fyrir börn á aldrinum 4–12 ára – tryggir tengingu og öryggi á meðan þau uppgötva heiminn.
Betri svefn. Snjallari endurheimt. Meiri hreyfing, án truflana.
POLAR Loop er einfalt, snjallt hreyfiarmband án skjás og áskriftar, hannað til að hjálpa þér að móta heilbrigðari venjur og bæta líðan, áreynslulaust. Með 24/7 mælingum á hjartslætti, svefni og daglegri virkni færðu gagnlegar upplýsingar sem stuðla að betri heilsu, meiri hreyfingu og aukna frammistöðu, án óþarfa flækju eða yfirþyrmandi gagnaupplýsinga. Loop skynjar og skráir æfingar sjálfkrafa, engin handvirk ræsing nauðsynleg. Vistar æfinguna og samstillir við Flow appið. Tryggir að engin æfing gleymist.
Xiaomi Smart Band 10 er nýjasta útgáfan af vinsælu snjallarmbandi Xiaomi, hannað til að fylgjast með heilsu og hreyfingu allan daginn. Armbandið er með skýran og bjartan AMOLED-skjá, létt og þægilegt í notkun og býður upp á fjölmörg líkamsræktarprógrömm, hjartsláttarmælingu, svefn- og streitugreiningu. Rafhlaðan endist í allt að 21 dag og tækið er vatnshelt, þannig að það hentar jafnt í ræktina, sundið eða daglegt líf. Fullkomið snjallarmband fyrir virkan lífsstíl með stílhreinu útliti og miklu notagildi.
• 1.72″ AMOLED skjár • Allt að 21 daga rafhlöðuending • Mælir skref, svefn, stress og súrefnismettun • 150+ íþróttastillingar og vatnsvarið allt að 50m dýpi • Uppfærðar mælingar og nákvæmni í svefnmælingum, hjartsláttarmælingu og blóðsúrefnismettun • Auðvelt að skipta um ól • Xiaomi HyperOS 2 stýrikerfi • Tengist við Mi Fitness appið
Apple Watch 9 LTE – Snjallari, hraðari og tengdur hvar sem er.
Apple Watch Series 9 LTE er snjallt og öflugt úr sem gerir þér kleift að vera tengdur allan daginn án þess að þurfa símann alltaf við höndina. Með LTE tengingu, hraðari frammistöðu og snjöllum heilsueiginleikum færðu úr sem styður þig í hreyfingu, daglegum verkefnum og vellíðan. Það fylgist með æfingum, hjartslætti og svefni og býður upp á skýran skjá og glæsilega hönnun sem passar við allar aðstæður.
Garmin Instinct Crossover snjallúrið sameinar klassískt analóg útlit og harðgerða hönnun við öfluga tækni. Úrið er byggt til að standast krefjandi aðstæður og hentar jafnt í útivist, æfingar og daglega notkun. Með nákvæmri GPS staðsetningu, fjölbreyttum æfingamælingum og snjöllum tilkynningum færðu áreiðanlegan félaga sem lítur jafn vel út í borginni og á fjallstindinum. Úrið býður upp á nákvæma staðsetningu með hjálp GPS , GLONASS, Galileo og SatIQ™ tækni. Allt að 14 daga rafhlöðu ending í eðlilegri notkun.
Einstaklega hentugt úr fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu skref í heimi snjallúra eða vilja hafa einfaldleikann í fyrirrúmi. Úrið er útbúið öllu því helsta sem hefðbundið heilsuúr eins og skrefamæli og púlsmæli.
Garmin Venu 4 – Glæsilegt snjallúr með heilsumælingum og skjá sem heillar.
Garmin Venu 4 er glæsilegt snjallúr með björtum og skýrum skjá sem gerir allar heilsu- og líkamsræktarmælingar aðgengilegar á einu augnabliki. Úrið fylgist með hjartslætti, svefni, streitu og fjölbreyttum æfingum á meðan löng rafhlöðuending tryggir að það haldi í við þig dag eftir dag. Fullkomið fyrir þá sem vilja sambland af stíl, tækni og heilsuvitund. Allt að 10 daga rafhlöðuending sem snjallúr.
Garmin Venu X1 – Flott hönnun, öflug tækni og frammistaða á næsta stigi.
Garmin Venu X1 býður upp á háþróaða heilsu- og æfingatækni í flottri umgjörð. Með nákvæmum mælingum, fjölbreyttum æfingaprógrömmum og skýrum skjá færðu djúpa innsýn í frammistöðu og bata. Úrið hentar jafnt fyrir metnaðarfulla íþróttaiðkendur og þá sem vilja hámarks yfirsýn yfir eigin heilsu og virkni. Stóri 2” AMOLED skjárinn með safírgleri og titanium umgjörð tryggir að þú færð eitthvað sem lítur vel út og þolir daglegt hnjask.
Apple Watch SE (Gen 2) LTE – Einfalt og hagkvæmt snjallúr.
Apple Watch SE (Gen 2) LTE er frábært snjallúr fyrir þá sem vilja Apple upplifunina á einfaldan og hagkvæman hátt, með auknu frelsi með LTE tengingu. Þú getur hringt, sent skilaboð og fengið tilkynningar án þess að hafa símann með þér á meðan úrið fylgist með hreyfingu, svefni og daglegri virkni. Úrið er létt, þægilegt og hannað fyrir daglegt líf, snjallt val fyrir alla sem vilja vera tengdir og á hreyfingu.