Ný og endurbætt útgáfa af SE Apple úrinu hefur nú stigið fram á sjónarsviðið með fleiri eiginleikum en áður. Nú getur þú skilið símann eftir heima og haldið út í daginn þar sem úrið getur hýst símanúmerið þitt eitt og sér.
Garmin Dash Cam X210 – Skýr upptaka, aukið öryggi og hugarró á ferðinni.
Garmin Dash Cam X210 tryggir skýra og nákvæma upptöku á ferðinni, svo þú getir ekið með auknu öryggi og hugarró. Með skarpri 1440p HD upplausn, Garmin Clarity™ HDR og 140 gráðu sjónarhorni, nærðu öllu því sem er að gerast fram undan, dag sem nótt. Bjartur og skýr 2,4″ skjár er á myndavélinni svo þú getir skoðað myndefnið á myndavélinni sjálfri. Myndavélin vistar sjálfkrafa myndband þegar hún nemur högg svo þú getir sýnt fram á hvar og hvenær atvikið átti sér stað. Vistuð myndbönd eru geymd í skýi sem hægt er að nálgast úr Garmin Drive appinu. Þú getur deilt myndböndum með öðrum, en til þess þarftu virka Vault áskrift. Hafðu hendur á stýri og notaðu raddskipanir til að vista myndbönd, hefja/stöðva hljóðupptöku, taka myndir og meira. Í boði á ensku, þýsku, frönsku, spænsku, ítölsku og sænsku.
Galaxy Ring mátunarsett – Finndu rétta stærðina áður en þú velur Galaxy Ring.
Ekki giska á réttu stærðina, við mælum með því að máta og finna réttu stærðina. Þannig mun Galaxy Ring snjallhringurinn virka best. Í mátunarsettinu eru níu prufuhringir í stærðum 5 til 13. Þannig finnur þú réttu stærðina en mælt er með að prófa stærðina sem þú telur hina einu réttu í að minnsta kosti sólarhring til að tryggja rétta stærð og 100% þægindi. Þegar þú hefur fundið réttu stærðina getur þú einfaldlega skilað mátunarsettinu í næstu verslun okkar og endurgreiðslan fer upp í verðið á Galaxy Ring. Stærðir fimm til sjö eru ekki í boði á Íslandi og mátunarsettið inniheldur ekki stærðir 14 og 15.
Galaxy Watch 5 Pro – Harðgert, endingargott og tilbúið í krefjandi dag.
Samsung Galaxy Watch 5 Pro er hannað fyrir þá sem vilja hámarks endingu og áreiðanleika í hverju skrefi. Harðgerð og vönduð hönnun gerir úrið fullkomið fyrir æfingar, útivist og annasama daga, á meðan öflugar heilsu- og líkamsræktarmælingar hjálpa þér að fylgjast náið með framförum. Nákvæm GPS staðsetning, löng rafhlöðuending og snjallar tilkynningar tryggja að þú sért alltaf tengdur og í takt við markmiðin þín. Galaxy Watch 5 Pro er traustur félagi fyrir þá sem ætla sér meira.
Galaxy Fit3 BT – Létt, einfalt og fullkomið til að fylgjast með hreyfingu og heilsu.
Samsung Galaxy Fit3 BT er létt og þægilegt snjallúr sem hjálpar þér að halda utan um heilsu og hreyfingu á einfaldan og skilvirkan hátt. Það fylgist með skrefum, hjartslætti, svefni og fjölbreyttum æfingum, svo þú sért alltaf með góða yfirsýn yfir daglega virkni. Bjartur og skýr skjár gerir upplýsingarnar aðgengilegar í einu augnabliki og löng rafhlöðuending tryggir að armbandið fylgi þér dögum saman án þess að þurfa stöðuga hleðslu. Galaxy Fit3 BT er snjallt og hagkvæmt val fyrir þá sem vilja vera í betra formi og tengdur allan daginn.
Galaxy Watch Ultra er fyrir þau allra kröfuhörðustu, það þolir flest og fer með þér upp á fjöll í utanvegahlaupin, í gönguna á Hornstrandir eða kajak ferðina meðfram suðurströndinni. Títan umgjörðin, safír glerið og 10ATM vatnsvörnin sér til þess að Watch Ultra er alltaf til taks og til í slaginn.
Skiptu um ól á Galaxy Watch 8 eða Watch 8 Classic úrinu þínu á einfaldan máta, Allar ólarnar notast við One Click tæknina frá Samsung sem er einföld í notkun, bara ýta á einn takka og flókið festinga kerfi opnast og þú getur smeygt annarri ól á. Athleisure ólin er létt svo þú munt nánast ekki finna fyrir úrinu þínu, einnig er hún vatnsfráhrindandi svo þú þarft ekkert að vera að taka af þér úrið fyrir sturtu eða sund.
Skiptu um ól á Galaxy Watch 8 eða Watch 8 Classic úrinu þínu á einfaldan máta, Allar ólarnar notast við One Click tæknina frá Samsung sem er einföld í notkun, bara ýta á einn takka og flókið festinga kerfi opnast og þú getur smeygt annarri ól á.